Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 13
•Stýrishús. — Stýrisvél. — Stýri. 1. Stýrishúsi er komið fyrir fremst ofan á þil- farsbyggingu. Er það ca. 2.5 m. á lengd en 5.4 m. á breidd, þar sem það er breiðast. Er þar komið fyrir: a) Dýptarmæli bb. megin fremst. b) 2 stk. vélsímaáhöld sb. og bb. megin. c) Áttavita á standi á gólfi og öðrum á þaki. d) Flaggaskáp. e) Flautustreng fyrir eimflautu. f) Rafmagnsstýrishjóli, sem stjórnar raf- magnsstýrisvél. Inngangur í húsið er sb. og bb. megin aftan frá; einnig uppgangur frá gangi bb. megin í þilfarshúsi, svo sem áður er getið. 2. Rafmagnsstýrisvél. Henni er komið fyrir í járnhúsi aftast ofan á bátapalli og vinnur hún beint á tannkvadrant stýr- isins. Inngangur í hús þetta er sb. og bb. megin af bátaþilfari. Hjálparstýri (handstýri) liggur fram úr húsinu, og er því stjórnað af bátaþilfari. 3. Stýri skipsins er ballance-stýri, með föstum stamma í gegn, er það snýst um. Stýrisleggurinn er heill frá stýri upp á bátaþilfar, en um hann liggur hulsa upp í gegn um íbúðir og borðsal. Loftskeytaherbergi. Kortaklefi. Inngangur í skipstjóraíbúð. 1. Loftskeytaherbergið er sb. megin fyrir aftan stýrishús, og er inngangur í það frá stýrishúsi. Er þar komið fyrir íbúð loftskeytamanns ásamt loft- skeytatækjum og talstöð. Loftnet stöðvarinnar ligg- ur á milli mastra skipsins. 2. Kortaklefi er bb. megin fyrir aftan stýrishús. Er þar komið fyrir miðunarstöð skipsins, ýmsum mælitækjum, kortum o. fl. í kortaklefanum er borð, bekkur, stóll og geymsluskápur. 3. Inngangur er úr kortaklefa í setuherbergi skip- stjóra, einnig er inngangur í það aftan frá bátaþil- fari; úr setuherberginu er gengið inn í svefnher- bergi og þaðan inn í W.C. Góð loftræsting er í íbúð- inni með loftræstingu út. Bátaþilfar, uppgangar, reykháíur, vélarhágluggar. 1. Bátaþilfar er yfir þilfarsbyggingum. Er upp- gangur í það frá gangi fyrir aftan mastur bb. megin, og er kappi þar yfir. Einnig eru tveir uppgangar á það frá þilfari sb. og bb. megin við þilfarshús á móts við reykháf. Loks er fjórði uppgangurinn upp í gegn um stiga, er liggur upp í stýrishús frá gangi bb. megin. 2. Reykháfur er fyrir aftan íbúð skipstjóra ca. 3 m. á hæð. Auk þess sem öll púströr og reykrör ganga upp í gegn um hann er einnig tekið inn um hann hreint loft, sem dælt er til íbúða og vélarrúms. 3. Vélarrúmshágluggar eru fyrir aftan reykháf, og eru þeir allir lokaðir og opnaðir innan frá. Bjargbátar. Björgunartæki. 1. 2 stk. bjargbátum er komið fyrir sb. og bb. megin aftast á bátaþilfarinu; eru það venjulegir togarabátar. Annar báturinn skal útbúinn með ca. 8 HK. dieselvél, en hinn með loftskeytatækjum með tilheyrandi, auk alls venjulegs, er íslenzk ríkisskoð- unarlög mæla fyrir um. Bátar þessir skulu standa og hanga í bátsuglum, sem þannig eru útbúnar, að tveir menn geti, sinn með hvorri sveif skrúfað þá út á mjög stuttum tíma, svo að þeir hangi lausir af öldustokk skipsins. Um leið og byrjað er að skrúfa, lyftast bátarnir af hökum þeim, er kjölurinn hvílir á. Bátarnir eru súrraðir niður með venjulegum bátasúrringum, sem losa þarf áður en byrjað er að snúa. Kæmi það fyrir, að ekki væri hægt að koma bjargbát út nema öðru megin við skipið, er komið fyrir bómu aftur af afturmastrinu, nægilega sterkri til þess að lyfta bátnum og koma honum út hvoru megin sem vera skal. Sé ekkert rafmagn í skipinu, er honum lyft með handafli á vindunni, sem sérstak- lega er til þess útbúin. 2. Bjarghringjum er komið fyrir utan á stjórn- palli og aftur á stýrisvélarhúsi, einnig á rekkverki bátapalls. Línubyssa er geymd í kortaklefa ásamt neyðarljósaútbúnaði. 2 stk. langdræg kast- og morse-ljós ásamt inn- byggðum votarafmagnsgeymi eru einnig geymd í kortaklefa. Allur annar björgunarútbúnaður samkv. ísl. ríkisskoðunarlögum. Möstur, bommur, pollar, gálgar. 1. 2 stk. möstur eru í skipinu af venjulegri stærð, en stangarlaus. Á þau er komið fyrir loftneti, sigl- ingarljósum og lyftikrókum fyrir blokkir og bommur. 2. 1 stk. bomma er á frammastri til út og inn- lyftingar á botnvörpu, og leggst hún fram á hval- bakinn. 3 stk. bommur eru á afturmastri; tvær af þeim snúa fram og snúast um ás, sem festur er fremst í bátaþilfar inn við þilfarshús. Bommur þessar eru báðar ætlaðar fyrir út- og inn-lyftingu á botnvörpu og hlerum. Þegar bommur þessar eru ekki notaðar, eru þær lagðar í króka, sem liggja utan á efra þilfarinu. Ein bomman snýr aftur og snýst um lið, sem festur er í sjálft afturmastrið. Bomma þessi er ætluð til vara til lyftingar á bjarg- bátum, ef með þyrfti, og ýmislegt fleira. Bomma þessi liggur í baulu aftur á stýrisvélarhúsi. 3. 2 stk. masturspollar (þ. e. tvöfaldir pollar) og 2 stk. síðupollar (þ. e. einfaldir pollar) er komið fyrir á framþilfari fyrir togvírana. Útlit og stærð mjög svipað og gerist á togurum nú. Festing þeirra er ekki í gegn um þilfarið, heldur er smíðaður járn- kassi vel styrktur niður í járnþilfar og pollunum fest þar á með þunnu eikarundirlagi á milli. Allar rúllur pollanna .eru 18” í þvermál (það fer betur með vírana), og skulu polla-húsin uppbyggð fyrir VÍKINGUR 165
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.