Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 32
það ef hún vilí. Og það vill svo vel tií, að í E. í. eigum við alþjóðarstofnun með 30 ára starfsfer- il að baki, og það gefur auga leið, að á reynslu þess eigum við að byggja. Það má að sjálfsögðu kalla áframhaldandi samstarf E. í. og Viðskiptaráðs eftir stríð, eins- konar þjóðnýtingu. Ef það er hagkvæmt, þá skiptir það mestu. Verði kröftunum dreift, smjúga erlendu félögin hér inn. Og þó við í bili fáum einstaka vörubagga fluttan fyrir „niður- sett verð“, þá er lítils um það vert, móti því, að koma flutningunum yfir í þjóðarinnar eigin skip. Ríkisskip hefur að sjálfsögðu unnið hið gagn- legasta starf síðan það var stofnað. En manni verður á að spyrja: Því er verið að tvískipta þessu? Hefði ekki enn meira áunnizt með sam- einingu beggja fyrirtækjanna, eins og var. Sam- einnigu millilanda- og strandsiglinga undir einni stjórn. Það er ervitt að sjá hvert hagræði þjóð- inni sem heild getur verið í þessari tvískiptingu. Svipað má og segja um skipakaupafyrirætlanir Samvinnufélaganna. Þau finna að vísu hvar skórinn kreppir um innnlenda skipakostinn. En yrði ekki einnig þeirra aðstöðu bezt borgið í sem nánastri samvinnu við E. I. eins og verið hefir? Það er vitanlegt, að öll dreifing í þessum efnum rýrir afköstin og eykur útgjöldin, út- gjöld, sem almenningur verður að greiða. Hér má ekkert hik, engin sundrung stjórn- málaflokka né sýtingssemi stjórnarvalda eiga sér stað. Skipin, sem við eigum, eru ekki sam- boðin því fulla þjóðarsjálfstæði, sem við höfum nú fengið. Viðskiptaráð og aðrir stjórnendur fjármála ríkisins, misskilja í verulegum atriðum sitt hlutverk, ef þeir stefna að því að reita af E. 1. sjóði þess og gera því ókleifa alla fram- sókn. 30 ára starf E. 1. er búið að sýna þjóð- inni að sjóðir þess eru betri eign en þeir sem safnast kunna hjá ríkissjóði, því það er meiri vissa fyrir því, að þeim sé varið til hinna gagn- legustu hluta. En skyldi það ólíklega ske, að upp rísi meðal ráðamanna þjóðarinnar þeir menn, sem betur vilja og meira vita í þessum málum en t. d. stjórnendur E. 1., þá hefir þing- ið alltaf undirtökin á fjármunum félagsins og getur beint stjórnendum þess inn á réttari brautir. Hér ber því allt að sama brunni. Það á að efla E. 1. eftir fremsta megni. Sjómannablaðið „Vík- ingur“ skorar á menn úr öllum starfsflokkum sj ímannastéttarinnar, sem hafa skilning á gagnsemi farskipaflotans, að hefja umræður um þetta mál í blaðinu. Sjómenn verða í þessu máli, sem öðrum, sem að útveginum snúa, að leggjast á eitt um það, að ekkert undanhald eigi sér stað. Þeir verða að vinna að því, að áfram sé haldið með bjartsýni og fullri djörfung. Hér er um það Sexíugur: Jón Krisftófersson, skipsftjóri Jón Kristófersson, skipstjóri, er fæddur að Breiðabólsstað á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu 9. júní 1884. Foreldrar hans voru þau hjónin Kristófer Þorvarðsson og Rannveig Jónsdóttir. Þau bjuggu á Breiðabólsstað, þar sem nú hefir lengi verið læknissetur. Jón er í föðurkyn af hinni kunnu Hörgsdalsætt, en móðir hans var frá Mörk (á Síðu). Jón hefir lengst af stund- að sjómennsku og verið skipstjóri í mörg ár, bæði landa á milli og með ströndum landsins. 1 Reykjavík mun hann nú hafa verið í full 40 ár. Var hann um skeið mjög heilsutæpur, en hlaut þó að lokum góðan bata og gegnir enn störfum sínum sem fyrr, nú um hríð í hafnarskrifstof- unum. — Hann er kvæntur Þórunni Guðmunds- dóttur, Stefánssonar, og eiga þau tvær efnilegar dætur, Vigdísi og Rannveigu; heimili þeirra er á Ránargötu 22. Kunnugum þarf ekki að tjá prúðmennsku Jóns í hvívetna og um óyggjandi drengskap hans munu þeir nærri fara, sem þekkja hann bezt. að ræða, að koma þjóðinni úr þeirri bónbjargar- aðstöðu, sem hún hefir verið í um aldaraðir og valdið eymd og allskonar áþján. Eg efast held- ur ekki um, að hver einstakur sjómaður muni í þessu máli taka undir orð Torfa sýslumanns í Klofa og segja: „Þeir hefðu þó átt að vita, að á mér mundi ekki standa — á mér gat ekki staðið.“ Hallgr. Jónsson. 184 VlKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.