Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 34
tapað fyrstu umferðinni í þessari viðureign. En við skulum nú sigra ófreskjurnar enn, verið bara vissir um það. Hver, sem er á gagnstæðri skoðun, getur fengið kaupið sitt strax og kom- ið sér burtu. Það er meira en nóg af flekum við ána og enn nógur tími til þess að ná til þess og koma sér yfir fljótið." Það hreyfði sig ekki einn einasti maður. Leningen tók þessari þögulu traustsyfirlýs- ingu með hlátri, sem líktist frekar urri. „Rétt er það piltar, þetta líkar mér. Þið viljið ekki missa af því, sem enn er eftir af leiknum, skilst mér. Jæja, gamanið byrjar ekki fyrr en í fyrra- málið. Og um leið og maurarnir hafa verið rekn- ir á flóttta, þá verður svei mér nóg að vinna og hærra kaup fyrir hvern mann. En farið nú og fáið ykkur eitthvað að borða, ekki veitir af.“ Mennirnir höfðu ekki gefið sér tíma til þess að grípa sér bita í æsingi orustunnar um dag- inn. En nú þegar ekki sást til mauranna um stundarsakir, og ,,benzínveggurinn“ veitti all- mikla öryggiskennd, þá fóru hinir tómu magar þeirra að segja til sín. Brýrnar yfir hinn steypta skurð voru teknar burtu. Hér og þar voru einstaka maurar komn- ir að skurðinum. Þeir litu á benzínið og snéru svo aftur í mesta flýti. Þeim leizt auðsjáanlega ekki á þennan skurð, sem lyktaði svo illa, enda höfðu þeir nóg að bíta í bráðina á ekrunum. Bráðlega tók að minnka um gróður á ekrunum og þar með var margra mánaða erfiði að engu orðið. Þegar rökkrið var að síga yfir, komu allstór- ir maurahópar að skurðinum, en fóru ekki enn fram á bakkann. Leningen setti menn á vörð með vasaljós og lét bifreiðarnar vera við skurð- inn með tendruð ljósker og vélarnar í gangi, því næst gekk hann til skrifstofu sinnar og fór að reikna út tjón sitt. Hann áætlaði það mikið, en ef teknar voru með í reikninginn bankainn- eignir hans, var það ekki óbærilegt. Hann fór nú að gera nýjar ræktunaráætlanir, sem myndu bæta honum upp tjónið áður en langir tímar liðu. Og hann var reglulega ánægður, er hann að lokum fór að hátta, og svaf fram að dögun næsta dag, og truflaði hann ekki nein hugsun um það, að á morgun gæti hann vel orðið nög- uð beinagrind. Hann fór á fætur um sólarupprás og gekk út á hið, flata þak húss síns. Og við honum blasti sjón eins og Dante gæti hafa séð í víti. Allt um- hverfið, margar mílur, var ekkert annað en svört, gljáandi mauramergð. Hvíldur, saddur, en samt gráðugur her, það var hvergi hægt að sjá neitt annað en mauraþröngina, nema í norðri þar sem hið mikla fljót rann rólegt en straumþungt. Það var hindrun, sem maurarnir gátu ekki yfir- 186 stígið. En jafnvel hinn hái, steinsteypti flóð- garður, sem Leningen hafði látið reisa meðfram fljótsbakkanum til varnar gegn flóðum, var þakinn af maurum eins og allt annað utan skurðarins, þar sem glampaði á gljáandi yfir- borð benzínsins. Svo þeir voru þá ekki saddir af því að éta upp til agna allar þessar stórkostlegu ekrur? Nei, það var langt frá því, þeir voru aðeins á- fjáðari í meiri ránsfeng, — fjögur hundruð menn, fjölda hesta og sneisafullar kornhlöður. I fyrstu virtist svo, sem benzínskurðurinn myndi duga. Umsátursherinn sýndist meðvit- andi hættunni á að leggja út í hann, og réðist ekki í að steypa sér niður í hann. I stað þessa fundu þeir upp betri aðferð. Þeir fóru að safna að sér trjáberki, kvistum og fölnuðum blöð- um, því allt grænt var löngu upp étið, og þessu köstuðu þeir niður í benzinið. En er nokkur timi leið, sást koma úr suðvestri löng maurafylk- ing, sem bar með sér tamarindblöð, eins og not- uð höfðu verið við að brúa ytri skurðinn dag- inn áður. Þar sem benzínið var alveg kyrrt í skurðin- um og enginn straumur í því, flutu kvistir og blöð þar sem þeim var kastað. Þó liðu allmarg- ar klukkustundir, þar til maurunum hafði tek- ist að hylja meiri hlutann af yfirborði skurðs- ins með kvistum, berki og blöðum. Loks voru þeir þó tilbúnir að gera beina árás. Áhlaupasveitir þeirra þyrptust niður í skurð- inn, hlupu eftir blöðunum og kvistunum og ýttu þeim yztu nær hinum bakka skurðsins. Svo fóru þeir að klifra upp hinn bakkann, til þess að ráð- ast gegn hinum hjálparvana verjendum. Meðan öll þessi sókn fór fram, sat bóndinn rólegur, horfði á með athygli, en hreyfði ekki legg né lið. Þar að auki hafði hann skipað mönnum sínum, að trufla ekki á nokkurn hátt það sem árásarherinn hefði fyrir stafni. Þeir stóðu, sátu eða lágu meðfram skurðinum, horfðu á aðfarir óvinanna og biðu eftir merki frá húsbónda sínum. Nú var allt yfirborð skurðarins þakið maur- um. Nokkrir höfðu komist yfir og hlupu beint að verjendunum. „Allir burtu frá skurðinum", hrópaði Len- ingen. Menn hans flýttu sér burt, hver um ann- an þveran, án þess að hafa minnstu hugmynd um fyrirætlanir hans. Hann beygði sig áfram, og lét stein detta varlega niður í skurðinn. Þar sem steinninn féll kom auður blettur. Leningen kveikti á eldspítu, kastaði henni niður á hinn auða benzínblett og stökk afturábak, og í sama vettvangi umkringdi himingnæfur eldveggur verjendaliðið, er skurðurinn logaði upp. Þessi dæmalausa og áhrifamikla bardagaað- VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.