Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1951, Blaðsíða 31
)
1/3. Herir S. Þ. þreifa fyrir sér
á 100 km. víglínu. Sóttu á einum
stað fram 20 km.
•
2/3. Herir S. Þ. hefia harða sókn
á 40 km. breiðu svæði. Hafa unnið
nokkuð á. Barizt var í návigi. —
Eisenhower skrapp til Lundúna í
gær til að ræða við yfirmenn brezka
heraflans. — 1 Bandaríkjunum eru
framleiddir hjólbarðar án slöngu,
sem geta ekki sprungið.
•
3/3. Hersveitir S. Þ. komnar í
Hoengsong. Fóru á þremur stöðum
yfir Hanfljótið til að reyna varnir
höfuðborgarinnar. Kommúnistar hafa
31 herfylki til varnar.
•
6/3. Kommúnistar veita öflugt
viðnám á miðvígstöðvunum. Vart
inikilla liðsflutninga þeirra í N.-
Kóreu. — Síldarafli Norðmanna er
ineð mesta móti. — Jutlandia komið
til Japans. — Sendiherra Tékka á
Indlandi neitaði að fara heim til
Prag. Hann fékk landvistarleyfi í
Englandi.
•-
7/3. Stórfelld rýmkun á hernáms-
samningi við V.-Þýzkaland. Bonn-
stjórnin fer með utanríkismál o. fl.
og tekur að sér skuldir Þýzkalands.
Þjóðverjar taka rýmkuninni kulda-
lega.
•
8/3. Truman er beðinn ásjár í
Marokkódeilunni. — Indland og
Vestur-Þýzkaland skiptast á sendi-
herrum.
•
9/3. Ölga og fangelsanir í
Tékkóslóvakíu vegna átaka um utan-
ríkisviðskipti landsins. Rússar lieimta
að hætt verði að verzla við Vestur-
Evrópu, þó að það kosti stórkost-
lega versnandi kjör fyrir Tékka. —
115 ára gamall Júgóslavi vill læra
að lesa. — Hersveitir S. Þ. sóttu
fram á 150 km. svæði í gær. Hafa
náð öruggri fótfestu norðan Han-
fljótsins. — Tilræðismaður Trumans
dæmdur til dauða.
•
10/3. Þjóðverja dreymir uin sain-
einað Þýzkaland, en vilja að það
gerist með friðsamlegum hætti. —
Ernst Bevin lætur af embætti sem
utanríkisráðherra Breta. — Morri-
son tekinn við af Bevin. Bevin sagði
af sér á 70 ára afmæli sínu, en
verður áfram ráðherra sem innsiglis-
vörður konungs. — Flugvélar fleygja
niður mat handa norskum skógar-
höggsmönnum.
•
12/3. Aðeins 10 stiga frost á há-
jökli Grænlands í gær, en í nótt
kólnaði mjög aftur og var komið 43
stiga frost kl. 8 í morgun.
•
13/3. Fjölmenn verkföll og múg-
æsingar í Barcelona. Uppþots-
menn brutu rúður, grýttu hús og
brenndu bíla. Kommúnistar sagðir
standa að baki uppþotsins. — Her-
styrkur Kínverja í Kóreu stórlega
lamaður. — Norðmenn ætla að leggja
frani lið til Evrópuhersins.
•
14/3. Franco ógnar verkfalls-
mönnum með herskipum. — Fimm
hundruð verkfallsmenn handteknir í
Barcelona.
•
15/3. Suðurherinn tekur Seoul. —
Grænlendingar kynnast sköttum og
tollum. Frábáðu sér tolla á kaffi og
tei. — Leynileg rússnesk útvarps-
stöð hvetur til uppreisnar gegn
Stalín. London heyrði í stöðinni.
•
17/3. Þjóðnýting oliulindanna
í fran er samningsrof að dómi
Breta. — Harðnandi viðnám komm-
únista á miðvígstöðvunum í Kóreu.
Grimmilegir bardagar norðan Seoul.
— Þýzku togararnir eru nú aftur
byrjaðir að selja fisk sinn í Bret-
landi eftir 12 ára fjarveru. — Hið
kunna norska skemmtiferðaskip
„Stella Polaris“ hefur verið selt
Svíum. — 14 létust og 20 særðust
í járnbrautarslysi i London. Lestin
fór af sporinu í járnbrautargöngum.
— 50 norsk skip stunduðu selveiðar
í Norðurhöfum.
•
18/3. Kaþólskir menn í Tékkó-
slóvakiu bannfærðir af páfanum.
•
20/3. Nokkrir Tékkar dæmdir fyr-
ir njósnir og landráð. Hjálpuðu lönd-
um sínum að flýja ógnarstjórnina. —
Rússar og Kínverjar hafa 8 milljónir
undir vopnum. — Sprenging varð í
stjórnarbyggingu kommúnista í Tir-
ana. Allmargir létu lifið.
•
21/3. Eisenhower hefur skipað
æðsta foringjaráð sitt. Montgomery
aðstoðarhershöfðingi. Varnarsvæð-
inu skipt í þrjá hluta. — Herir S. Þ.
tóku raforkuver Seoul óskemmt. Eiga
ófarna innan við 27 km. að 38.
breiddarbaugnum.
•
28/3. Sókn S. Þ. er örugg, en við-
nám kommúnista lítið. Kínverskir
herflokkar króaðir inni norður af
Seoul. — Norðmenn búast við síld-
arleysi við ísland í minnst fimm ár
enn. Telja kaldan straum norðan úr
íshafi valda að síldin hefur brugð-
izt. — Ný aðferð fundin í Argentínu
til að framleiða kjarnorku. — Her-
lög eru í Teheran og á olíulinda-
svæðinu í Suður-íran. — Ráðstefna
í Washington um hvað gera skuli
nú í Kóreu.
•
30/3. Sanieiginlegar kjarnorku-
rannsóknir Norðmanna og Hollend-
inga ákveðnar. — Fífldjarfur glæpa-
maður á ferð í Kaupmannahöfn.
Reyndi að ræna banka og skaut
tvo starfsmenn. — Viðnáin konun-
únista norðan Seoul eykst. Suður-
Kóreumenn eru komnir norður fyrir
38. breiddarbauginn.
•
31/3. Búist við mikilli gagnsókn
kommúnista þá og þegar. Flytja um
200 þúsund manna lið til vígstöðv-
anna. — Góð veiði er nú við Noregs-
strendur. — Bandaríkin semja upp-
kast að friðartillögum við Japan. —
Auðug fiskimið fundin við vestur-
strönd Suður-Afríku.
V I K I N G U R
145