Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1951, Page 25
hyg'lisverða katli (Velox-katlinum). 9. mynd sýnir ketil-
inn. (Sjá Stahl eimvélafræði). Myndin sýnir, að hverf-
illinn er hér hjálparvéh Gerðar voru ýmsar tilraunir
með hverfilinn og í því sambandi var miðlínuþjappan
(aksialkompressoren) bætt svo mikið, að hún náði yfir-
burðum yfir hinar eldri gerðir af miðflóttaaflsþjöppum,
en þessi árangur gerði það að verkum, að nú er Brown-
Boveri leiðandi fyrirtæki í smíði brennsluhverfla.
11. mynd. Dieselmótor með útblástursgashverfiil.
Einnig' fékkst mikilvæg- reynsla fyrir brennsluhverf-
ilinum, með tilraunum þeim, sem gerðar voru með hann
í sambandi við útblástursgas dieselmótora. Svisslend-
ingurinn Biichi fékk þá hugmynd, að láta útblásturs-
gasið frá dieselmótor knýja hverfil, er væri ástengdur
loftþjöppu, sem blési þrýstilofti inn í soggöng mótors-
ins. (10. mynd). Hér verður heldur ekki gerð nánari
grein fyrir þessu kerfi (sjá mótorfræði Stahl), en
12. mynd. Dieselmótor með útblástursgashverfill. 4.
Skolloftsdæla. 5. Loftþjappa. 0. Útblástursgashverfill.
þetta atriði er athyglisvert, vegna þess að með þessum
tilraunum fékkst reynsla fyrir brennsluhverfilinn, og-
varð hún til þess að hugmynd þessi varð siðar notfærð
í sambandi við flugvélamótora.
í mikilli hæð er flugvélamótorunum ekki kleyft að
sjúga til sín nægilegt loftmagn til brennslunnar í
strokknum. Þegar fyrir stríð var hafin smíði flugvéla-
mótora með útblástursgashverfli. Hverfillinn knúði
þjöppu, sem blés lofti til mótorsins. Þetta er athyglis-
vert í þessu sambandi, vegna þess að útblástursgasið
13. mynd. Havilland-Goblin vélin.
frá benzínmótor hefur hátt hitastig, með smíði þessara
hverfla var fundið efni, er þoldi hátt hitastig. Hvað
þróuninni hefur gengið sézt bezt á því, að þegar fyrir
stríðið voru slíkir útblásturshverflar smíðaðir. Þeir
snérust 28000 snúninga á mínútu og voru 900° C heitir.
Við þetta hitastig er snúðurinn og' hluti af húsinu rauð-
g-lóandi. Því miður er ekki liægt að nota brennsluhverfil
í venjuiegum rekstri við þessi skilyrði. Slíkir útblást-
ursgashverflar endast ekki lengur en nokkur hundruð
tíma, það getur gengið í flugvélamótor, en ekki í venju-
legri aflvél.
Síðasta og nýjasta tillagið til þróunar brennsluhverf-
14. mynd. Eins-þjappsbrennsluhverfilskerfi.
ilsins kom frá hinum nútíma þrýstiloftsflugvélamótor
(reaktionsflyvemotor). Þróun hans var eins og kunnugt
er mjög ör á stríðsárunum. Hann var smíðaður eftir
hugmyndum, er voru þekktar löngu fyrir þann tíma.
Það er Englendingurinn Whittle, sem á heiðurinn af
því að hafa fundið hann upp. 13. mynd sýnir slíkan
mótor (de Havilland-Goblin mótorinn). í gegnum inn-
streymisop í framendanum streymir loftið til miðflótta-
aflsþjöppu, sem síðan kastar því út í húsið til bruna-
holanna. Eldsneytið, sem er steinolía, er spýtt inn í
brunaholin. Logarnir standa aftur úr brunaholunum,
en þar blandast þeir lofti og við það fellur hitastigið
niður í 800° C. Gasstraumurinn frá öllum brunahol-
unum streymir nú til hverfilsins, sem hefur fastar
stýriskóflur og fyrir aftan þær eru ástengdar skóflur.
Einasta hlutverk hverfilsins er að knýja þjöppuna,
sem er tengd við hann með gildum, holum ási. Drif-
aflið myndast við afturkastið (reaktionsvirkningen),
VÍ Kl N □ U R
249