Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1951, Side 26
sem loftsstraumurinn veitir, þegar hann streymir aftur
úr mótornum og flugvélinni.
Þessi mótorgerð hefur haft stóra þýðingu fyrir þróun
brennsluhverfilins, vegna þess, að með þennan mótor
hafa verið gerðar ótal tilraunir og rannsóknir og hafa
Englendingar staðið þar í fremstu röð. Þessir mótorar
höfðu í byrjun mjög lélegá endingu, nokkur hundruð
16. mynd. Brennsluhverfill og þjappa, lokið er tekið
af. A hverfillinn B þjappan
tíma, og varð því fljótt að endurnýja þá. Það er einkum
varðandi brunaholin, sem dýrmæt reynsla hefur fengizt
í þessum efnum.
Áður en skilið er við þessa sambyggingu mótora og
hverfla, er vert að minnast lauslega á athyglisverðar
tilraunir er „Sulzer“ í Sviss vinnur nú að, en þær eru
í því fólgnar að nota þrýstihleðslu með háum þrýstingi
í dieselmótora í sambandi við útblástursgashverfla. í
stuttu máli er kerfið þannig, að dieselmótorinn vinnur
eins og gasaflgjafi (gasgenerator) fyrir hverfil, sem
verður hin eiginlega aflvél.
Smíði brennsluhverfla.
Eftir þessum línum, sem nú hafa verið dregnar, og
með aðstoðar hinnar tæknilegu þróunar, varð brennslu-
hverfillinn til. Hann var smíðaður á stríðsárunum og
að stríðinu loknu komu hinir fyrstu nothæfu hverflar
fram á sjónarsviðið, flestir all stórir. 14. mynd sýnir
eina slika vél, sem er í aðalatriðum eins og 4. mynd,
en er auk þess útbúin með lofthitara. Lofthitarinn er
hylki, sem líkist stórum eimsvala, með fjölda pípna,
er liggja á milli tveggja pípuplatna. Loftið frá þjöpp-
unni er leitt í gegnum pípurnar til brunaholsins og
hitnar á leiðinni af útblástursgasinu frá hverflinum,
er streymir utan um pípurnar. Við þetta nýtist tölu-
vert af hitanum úr útblástursgasinu og nýtni kerfisins
verður mun betri.
Lofthitarann er hægt að smíða úr ódýru efni, venju-
legum járnplötum og soðnum pípum, því þrýstingurinn
í honum er lágur og tæring á ekki að geta átt sér stað.
14. mynd er eins og 4. mynd af Brown-Boveri hverfli.
15. mynd er ljósmynd af snúð úr slíkum hverfli. Myndin
minnir mjög á snúð úr yfirþrýsti eimhverfli. 16. mynd
sýnir samstæðu af hverfli og- þjöppu, sem iokið er
tekið af.
Brunaholin er hægt að smíða á margan hátt, en í
aðalatriðum eru þau smíðuð eins og 17. mynd sýnir.
Þar sézt brunahol, sem smíðað er í Englandi. Loftið
kemur inn í brunaholið í gegnum rör, sem er beygt í
rétt horn. Inn í því er komið fyrir stýrisskóflum. Sjálft
brunaholið er smíðað eins og fyrr hefur verið talað um.
17. mynd. Brunahol úr brennsluhverfli (ensk smíði)
Það eru notaðir 4 brennarar, sem eru festir að framan-
verðu ásamt kveikitæki. Vegna þess, að pípan er beygð
í rétt horn, er mjög auðvelt að skifta um brennarana.
Olían hitnar af hinu heita lofti, er leikur um brennar-
anna inn í pípunni. Brennarnir eru festir með byssulás
(bajoetlás) og er hægt að skifta um hvern fyrir sig
þó hverfiliinn starfi. Til að koma í veg fyrir að logarnir
slái út þegar skift er um brennara, er í stuttri pípu,
sem er til hliðar við brennarana, stálkúla, sem fellur
niður og lokar' gatinu, sem brennarinn er í, ef hann er
tekinn úr. Þetta sést ekki á myndinni.
Brown-Boveri hverfillinn er sýnishorn af hinni venju-
legu gerð hverfla, sem nú eru í smíðum. Auk þessa
hverfils verða nefndir tveir aðrir, er líta dálítið öðru-
vísi út.
(Niðurlac/ næst).
, Andrés Guðjónsson.
Frá hafi til hafnar
Stærsti hvalur, sem veginn hefur verið, vai' veiddur
af japönsku hvalveiðiskipi 1948. Það var lcven-bláhval-
ur 89 feta langur og' tók 80 manns 4 klst. að skera
hann, AUur hvalurinn, meðtalið blóð og innýfli, vóg
136,4 smálestir. Lýsið sem unnið var úr hvalnum, vóg'
22,5 smálestir (133 föt), kjötið 61,4 smálest. Lýsið
og kjötið var áætlað 450 þús. króna virði.
—0—
Árið 1950 veiddu norskir fiskimenn alls 1.240.000
smálestir fiskjar, sem var upp úr sjó 350 milj. norskra
króna virði. Útflutningsverðmætið nam rúml. 560 milj.
norskra króna. Þar af voru 35.500 smálestir af niður-
soðnum fiskafurðum og seldist fyrir 140 milj. krónur.
Bandaríkin keyptu einn þriðja af niðursuðuvörunum.
I þessu sambandi væri fróðlegt að athuga til saman-
burðar hlutföllin á milli þess hvað íslendingar og' Norð-
menn flytja mikið út af niðursoðnum sjávarafurðum,
miðað við heildarafla beggja. Útkoman yrði víst harla
óglæsileg fyrir íslendinga og gæti ef til vill vakið menn
til umhugsunar um ástandið lijá okkur í þeim efnum.
25 □
VIKINGUR