Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1954, Blaðsíða 23
ERLENDAR FRÉTTIR.
mæti saltfiskframleiðslu S. I. F. á
árinu 1952 nam 178 millj. kr.
*
27. /11. Dalvíkurbátur fórst í gær-
kveldi með 2 mönnum, rétt utan við
þorpið. — Geysifjölmenn og virðuleg
minningarathöfn í Hafnarfjarðar-
kirkju, er sjómennirnir af Eddu voru
kvaddir. — Oliuskip f hættu við
örfirisey. Tvö skip komu því til að-
stoðar.
*
28. /11. Iðnaðarbankinn hefur keypt
Lækjargötu 10B undir banka. — Úti-
bú bankans á Keflavíkurflugvelli tek
ur til starfa á miðjum vetri. — Til
sundlaugarbyggingar í Vesturbænum
hafa safnazt kr. 150 þús.
*
30./11. Úr, sem týndist í smala-
mennsku 1906, en fannst 1949, gekk
eftir 43 ára útivist, eftir að það
hafði verið dregið upp.
*
1. /12. 75 ár eru liðin síðan kveikt
var á fyrsta vitanum á lslandL Verð-
ur bráðlega unnt að sigla kringum
allt land í samfelldu vitaljósi. Vitar
á öllu landinu eru nú 218 talsins, þar
af eru Ijósvitar nú alls 104.
*
2. /12. Eyfirzkur bóndi fékk 30 tunn
ur byggs af kornökrum sfnum f
haust. Mun hann vera eini bóndinn
á Norðurlandi, sem ræktaði korn að
ráði í sumar. — lslenzkir tog-
arar eru hættir karfaveiðum við
Grænland vegna illviðra og ísreks
á miðunum.
*
3. /12. Elzti Islendingurinn, Helga
Brynjólfsdóttir frá Selalæk, er látin,
107 ára.
*
8./12. Tilraunir hafnar um fram-
Ieiðslu fiskimjöls til manneldis hér
á landi. — Benzínrör rifnaði í öskju-
hlið í morgun og streymdu þúsundir
Iítra niður hlíðina. Grjóthrun úr
hliðinni mun hafa rofið 8 þumlunga
víða Ieiðslu á 9. tímanum í morgun.
— Knattspyrnuflokki „Gullfoss“ af-
hentur fagur bikar sem fyrstu verð-
laun í knattspyrnukeppni í sumar.
— Fjögurra hæða bygging verður
reist fyrir miðstöð fiskirannsókna.
*
9. /12. Allir piltar úr 4., 5. og 6.
bekk Menntaskólans á Akureyri fóru
einn dag á síldveiðar á Pollinum.
♦
10. /12. Lýsi og mjöl h.f. prófar vél-
ar til soðkjarnavinnslu. Hefst vinnsla
bráðlega.
*
15./12. Mann tók út af ísborgu í
stórsjó, en skipsfélaga hans tókst að
bjarga honum. Synti hann með línu
til mannsins, er var ósyndur, en loft
í sjóstakk hélt honum uppL
*
17./12. Stór vöruskemma hjá SR
á Siglufirði brann i nótt. Eldsupptök
eru ókunn. — Hluti af húsþaki og
fiskhjallar með 120 tonnum af fiski
fuku á Seyðisfirði í gær. Stormur
svipti þakinu í loft upp og út á sjó.
— 6—8 fiskhjallar fuku á Akranesi
í óveðrL
*
20./12. Ný norsk-íslenzk vél, sem
haussker og magadregur, er í smíð-
um hér, og er ætlunin að hefja á
henni fjöldaframleiðslu.
*
28./12. Sænskt skip strandaði þann
26. við Engey. Mannbjörg varð. Er
skipið talsvert brotið, en það liggur
í stórgrýti.
10./10. Færeyingar selja 80.000
tunnur af saltsíld til Sovétríkjanna.
*
13./10. Múgur ruddist inn f banda-
ríska sendiráðið í Belgrad og særði
mann þar. Tító býður Bretum,
Bandaríkjamönnum og Itölum til
ráðstefnu um Trieste. Undirritaður
hefur verið samningur milli Grikk-
lands og Bandaríkjanna, sem veitir
Bandaríkjamönnum heimild til að
koma upp flug- og flotastöðvum í
Grikklandi. Gildir hann jafnlengi og
Atlantshafssamningurinn, eða til
1969.
*
23. /10. Sókn Frakka í Indó-Kína
hefur farið út um þúfur. Uppreist-
armenn gátu komið meginhluta hers
síns undan. — Verkfall 6000 benzín-
flutningamanna er að lama London.
— Ofsalegt óveður geisaði í nótt á
suðurodda Italíu. Óttast er um mik-
ið manntjón. — Nýr borgarstjóri var
kosinn í vestur-Berlín í stað Ernst
Reuter, sem lézt fyrir nokkru. Er
það dr. Walther Schreiber. — Ibn
Saud konungur Arabíu er alvarlega
veikur. Franskir hjartalæknar kvadd-
ir til hans. — Fyrsta fljótandi hval-
vinnslustöð Norðmanna fer frá Nor-
egi um 20. þ. m. til Suðurhafa.
*
24. /10. 100 manns hafa farizt í
flóðunum á Italíu. Heil þorp hafa
sópazt brott. Þúsund ferkílómetrar
eru undir vatni. — Brezka stjórnin
kallar út herlið vegna verkfalla
flutningamanna.
*
25. /10. 37 þjóðir vilja veita Japan
aðild að tollabandalaginu. — Undir-
búningi að brottflutningi Breta og
Bandaríkjamanna frá Trieste miðar
vel áfram. — Benzínflutningamenn
í A.-London ákveða að hætta verk-
fallinu.
*
27. /10. Arabaríkin safna öflugum
her allt umhverfis Israels-riki. Ótt-
ast er að þau hefji allsherjarárás til
að reka Gyðinga brott. — Stjórn-
málanefnd SÞ samþykkir tillögu um
sjálfstæði til handa Túnis.
*
28. * 10. Fiskkaupmenn í Aberdeen
óttast skort á ísfiski. — Flóðatjónið
VÍKINGUR
23