Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1954, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1954, Blaðsíða 29
Síldarmjölsþurrkarinn mikli í Wildwooa — hinn stærsti í heimi. í Chenical Progress, og eru vonir til að þurrk- ari þessi muni eiga framtíð fyrir sér í efna- iðnaðinum. Gísli Halldórsson hefur nú dvalið í Banda- ríkjunum í nær tvö ár og aðallega starfað sem ráðgefandi verkfræðingur fyrir Edw. Renne- burg & Sons Co., en það er eitt elzta fyrirtæki í framleiðslu fiskiðnaðarvéla, en framleiðir jafnframt allskonar vélar fyrir efnaverksmiðj- ur. Frá haji til hafnar í „The Fishing News“ 1. jan. s. 1. er sagt frá fyrstu veiðiför togarans Northern Crown frá Grimsby, í eign Northern Trawlers Ltd. Togarinn landaði rétt fyrir jólin ágætum túr af íslandsmiðum og seldi fyrir £ 7284-0-0. Skipstjóri á Northern Crown er Ágúst Eben- ezersson, sem kunnur er mörgum íslenzkum sjómönnum, og' er einn af mestu aflamönnum á brezka togaraflot- anum. Sverrir sonur Ágústs er stýrimaður á skipinu. Víkingurinn óskar Ágústi góðs gengis á hinu nýja skipi. # Marc Isambard Brunel er talinn einn af mestu hug- vitsmönnum á fyrri hluta nítjándu aldar. Hann teikn- aði stórskipið „Great Eastern", sem í mörgum atriðum var langt á undan sinni samtíð. í Krímstríðinu teiknaði hann þrýstilofts skriðdreka, sem herstjórninni þótti nokkuð öfgakenndur. Brunel átti frumkvæði að hinum fyrstu jarðgöngum undir ána Thems, sem byrjað var á 1825, byggði stóra hengibrú við Hungerford, hafnarmannvirkin i Cardiff og Sunder- land, og mörg stór skip. Alls stjórnaði hann byggingu 8 hafnarmannvirkja, 5 hengibrúa og 125 venjulegra j árnbrautabrúa. Árið 1825 birti hann opinbera áætlun um að grafa skurð gegnum Panamaeiðið, en á þeim skurði var ekki byrjað fyrr en árið 1881, eða 32 árum eftir dauða Brunels. — Þess skal þó geta, að 300 árum áður kom til tals að grafa þennan skurð. 1532 lét Karl fimmti framkvæma rannsókn á jarðveginum á Panamaeiði, með það fyrir augum að grafa skurð í gegn. Síðar bannaði sonur hans, Pilippus annar, framhald verks- ins, því hann taldi það „stríða gegn guðlegri tilhögun". * Á tímum seglskipanna var það talið gæfumerki ef skip sigldi milli tveggja syndandi máfahópa, án þess að neinn þeirra lyfti sér til flugs. V í K I N G U R 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.