Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Blaðsíða 5
hafði nokkrum klukkustundum
áður farið fyrir Reykjanes. Einn-
ig hafði jmr farið um á leið til
Reykjavíkur strandferðaskipið
Esja, sem fór kl. 3,30 á þriðju-
daginn frá Vestmannaeyjum, en
vitaskipið Hermóður fór þaðan
kl. 4 þennan sama dag.
Brak það, sem fannst við Kal-
manstjörn, var björgunarbátur
frá Hermóði og léttbáturinn, en
báðir voru bátarnir lítt brotnir,
er þeir fundust þar í fjörunni.
Að áliti siglingafróðra manna
mun Hermóður hafa verið kom-
inn í gegnum Reykjanesröstina,
er slysið bar að höndum. Um það
leyti, sem frá Hermóði heyrðist,
var vindur og sjór orðinn suð-
vestanstæður á þessum slóðum.
Telja þessir sömu menn það
sennilegast, að hnútur hafi kom-
ið á skipið og fært það í kaf.
þar áður var hann á gamla Her-
móði. Geta má þess og, að hinn
reglulegi matsveinn Hermóðs,
Sigmundur Þórðarson, er í
sjúkrahúsi um þessar mundir.
*
Sterkar líkur þykja benda til,
að vitaskipið Hermóður hafi far-
izt um sjö sjómílur fyrir norðan
Reykjanes á tæplega 100 metra
dýpi.
Blöðunum var afhent um þetta
svofelld fréttatilkynning frá
Landhelgisgæzlunni:
„Eins og kunnugt er, þá hefur
Landhelgisgæzlan undanfarna
daga verið að leita að, hvar vita-
skipið Hermóður muni hafa far-
izt.
Ennþá er ekkert fullvíst í því
efni, en sterkar líkur benda þó
til, að skipið hafi sokkið um 4,5
sjómílur vestur frá Höfnum á
tæplega 100 metra dýpi, eða um
7 sjómílum fyrir norðan Reykja-
nes. Á þessum slóðum hefur orð-
ið vart við olíu á sjónum á sama
stað í fleiri daga, og dýptarmæl-
ar hafa sýnt þar ójöfnu (þústu)
á botninum, sem annars er renni-
sléttur.
1 leitinni hafa tekið þátt varö-
skipin Þór, er fyrstur varð var
við olíublettinn, María Júlía, er
varð vör við þústuna, svo og Ægir
og gæzluflugvélin Rán. Leitinni
mun verða haldið áfram eftir að-
stæðum".
f fréttatilkynningu Landhelg-
isgæzlunnar segir ennfremur, að
öll 3 róðraduflin í Faxaflóa,
nefnilega 2 út af Garðskaga og
1 út af Akranesi, hafa slitnað
upp í óveðrunum undanfarið. Tvö
þeirra eru þegar fundin.
*
Vitaskipið Hermóður var við-
urkennt sjóskip, þó ekki væri það
stærra en 200 lestir. Skipið var
byggt í Svíþjóð 1947 fyrir vita-
málastjórnina, en auk þess að
vera á vegum hennar, hefur Her-
móður verið við landhelgisgæzlu.
Hefur skipið t. d. verið undanfar-
in ár á miðum Vestmannaeyja-
báta á vetrarvertíðum og verið
bátunum til ómetanlegs gagns.
Ólafur G. Jóhannesson skip-
stjóri hefur verið stýrimaður á
Hermóði frá því skipið kom, og
hefur hann ætíð farið með skip-
stjórn á Hermóði, þá er Guðni
Thorlacius skipstjóri hefur verið
í orlofi, og svo var nú. Ólafur var
að þeirra dómi, er bezt þekkja,
mjög traustur skipstjóri. Aðrir
yfirmenn skipsins áttu að baki
sér lengri eða skemmri feril hjá
Landhelgisgæzlunni eða á skip-
um Skipaútgerðarinnar. Geta má
þess og, að Guðjón Sigurðsson
vélstjóri, Freyjugötu 24, hætti
vélstjórastarfi á Hermóði í haust
er leið, vegna aldurs, en var í af-
leysingum nú. Hann hafði áður
verið vélstjóri á Hermóði allt frá
því er skipið kom til landsins, en
VÍKINGUE
■
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
ALDAN
hefur opnað skrifstofu að Vesturgötu 5, Reykjavík.
Skrifstofutími er fyrst um sinn:
Mánudaga ........... kl. 16,00 —18,00
Miðvikudaga ..........— 13,00 — 15,30
Föstudaga .......... — 16,00— 1S.0C
Sími skrifstofunnar er 2 34 76. •
2. stýrimenn á togurum eru beðnir að koma til
viðtals á skrifstofuna eftir hentugleikum.
Upplýsingar óskast frá félagsmönnum, ef þeir eru
lausir til starfs á skipum.
Stjórnin.
37