Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Síða 6
Sjómaima ■■■ innsí
á Alþingi
Er fundur hafði verið settur
í sameinuðu Alþingi 18. febr. sl.
ávarpaði forseti sameinaðs þings,
Jón Pálmason, þingheim og mælti
á þessa leið:
í dag komum við alþingismenn
saman af óvenjulega hörmulegu
tilefni, því að nú er talið víst,
eftir víðtæka leit úr lofti og á sjó
í 8 daga, að botnvörpuskipið Júlí
frá Hafnarfirði hafi farizt með
allri áhöfn á Nýfundnalandsmið-
um í ofveðrinu þann 8. þ. m. Hafa
þar horfið í hafsins djúp 30
hraustir menn úr liði okkar sjó-
mannastéttar.
Togarinn Júlí var talinn eitt á
meðal ágætustu skipa í þeim
flokki okkar fiskiskipaflota, sem
ber nafnið nýsköpunartogarar.
Hann var fullgerður á árinu 1947
og var 657 brúttó smálestir að
stærð, útbúinn fullkomnustu ör-
yggistækjum.
íslenzka þjóðin vill hafa frið
við aðra menn. Hún er friðsöm
þjóð. Þó á hún í árlegu stríði
vegna hinna örðugu atvinnuvega.
Það stríð er háð við hamfarir
náttúrunnar á sjó og landi: Ofsa-
storma, stórhríðar, þokur og
dimmviðri, hafís, vatnsföll og
annan háska. í þeirri baráttu
hafa margir Islendingar látið líf-
ið fyrr og síðar í hættulegum
ferðalögum í okkar illviðrasama
landi og á síðari árum ekki sízt
í viðskiptunum við okkar þýð-
ingarmestu samgöngutæki á
landi, sjó og í lofti og einnig okk-
ar nýjustu vinnuvélar.
En í fremstu víglínu okkar
lands stendur sjómannastéttin,
sem sækir bjargræði þjóðarinn-
ar í djúp hafsins við strendur
landsins og á fjarlægum fiski-
miðum. Hún getur á öllum tím-
um árs búizt við örðugu stríði
við ólgandi hafrót, enda þótt okk-
ar veiðiskip hafi á síðari árum
orðið miklu stærri og fullkomn-
ari að öllum öryggisútbúnaði en
áður hefur þekkzt.
Það er líka svo, að nálega ár-
lega eru stærstu skörðin höggvin
í það víglið íslendinga, sem á
sjónum heyir baráttuna.
Undanfarna daga hef ég og
fleiri hugsað aftur í tímann til
þess atburðar, er gerðist 8. febr.
1925, þegar einhver ægilegasta
stórhríð, sem komið hefur á þess-
ari öld, skall á, fyrri hluta dags,
yfir allt Norður- og Vesturland.
í þeim ósköpum fórust tveir full-
komnustu togarar, sem þjóðin
átti þá, vestur á Halamiðum. Fór-
ust með þeim 68 manns. Víðsveg-
ar á landinu varð þá manntjón
og miklir fjárskaðar.
Ég nefni þetta nú vegna þeirra
einkennilegu örlaga, að sama
mánaðardaginn, þann 8. febrúar
34 árum síðar, varð það hörmu-
lega manntjón, sem veldur okkur
sorg í dag.
Síðasta skeytið, sem frá Júlí
barst, heyrðist að kvöldi þann 8.
þ. m.. og allt bendir til, að það
sama kvöld hafi skipið farizt. Þá
var ofviðrið mest og mörg önnur
íslenzku skipin komust í mikinn
háska og voru sum tæpt komin.
Alltaf síðan hefur skinsins ver-
ið leitað af skipum og flugvélum
og það með mikilli fórnfýsi og
dugnaði. Ástvinir skipsmanna og
þjóðin öll hefur eigi viljað gefa
upp síðasta vonarneistann þar til
allt um þraut. En nú virðist öll
von úti um það, að nokkur hafi
bjargazt. Leit flugvélanna og
skipanna hefur náð yfir 70 þús-
und fersjómílna svæði.
Á skipinu var 30 manna skips-
höfn, flest ungir menn og hraust-
ir. Hinn yngsti þeirra var 16 ára,
en sá elzti 48 ára, flestir 20—30
ára.
Af þessum mönnum voru 19
frá Reykjavík, 5 frá Hafnarfirði
og 6 frá öðrum stöðum á landinu.
Tólf heimilisfeður voru í þess-
um hóp og sem láta eftir sig konu
og börn. 39 börn samtals innan
15 ára aldurs eru föðurlaus eftir
þetta sorglega slys. Margir áttu
foreldra á lífi — og er sumt af
því fólki einmana eftir.
Þann hörmulega atburð, sem
hér hefur orðið, harmar þjóðin
öll.
Missir 30 hraustra manna er
mikið áfall. Við, sem hér erum
saman komin, kveðjum hinar
föllnu hetjur í nafni þjóðarinnar
með virðingu og þakklæti fyrir
mikið og gott ævistarf. Minning-
arnar um þá og þann atburð, að
þeir féllu á vígvellinum, eru
merkilegar. í slíku stórslysi felst
mikil aðvörun fyrir þá, sem eftir
lifa, um alla þá fyrirhyggju, sem
framvegis er unnt að viðhafa.
Við þökkum öllum þeim mörgu
innlendu og erlendu mönnum,
sem af fórnfýsi, hugrekki og at-
orku tóku þátt í hinni víðtæku
leit. sem að skipinu var gerð.
Við sendum útgerðarstjórn og
eigendum skipsins í Hafnarf iarð-
arbæ einlæga samúðarkveðju. _
En fvrst og fremst. einkum og
sérstaklega viljum við í okkar
veikleika votta syrgjandi ástvin-
um hinna látnu manna einlæga
snmúð og dýpstu hluttekningu í
beirra sáru sorg. Foreldrar og
börn, eiginkonur, unnustur, syst-
kini. frændur og annað venzla-
fólk á þar hlut að máli.
Við viljum biðja Guð vors
lands. Drottin allsheriar. sem við
tilbiðium og trúum á. að senda
öllu hinu syrgjandi fólki sinn
stvrk og veita því sína vernd, svo
að bað geti tekið hinum þungu
örlögum, sem að höndum hafa
borið. með sálarró og huerekki.
Og að öllu bessu harmandi fólki
verði fært að hugga sig við minn-
ingarnar um hinar horfnu hetiur
og vonirnar um það að fá síðar
að hitta þessa sína ástvini á landi
lifenda.
38
VÍKINGUR