Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1959, Qupperneq 8
Neskaupstað, 16. febr.
Síðastliðinn föstudag, um kl. 18, kom
togarinn Gerpir heim til Neskaupstaðar
úr veiðiför á Nýfundnalandsmið.
Skipið fór frá Reykjavík þann 28.
janúar, eftir vélaraðgerð, og var því
alls 17 daga í veiðiförinni.
Fréttaritari Morgunblaðsins átti tal
við Birgi Sigurðsson í Neskaupstað, sem
var skipstjóri á Gerpi að þessu sinni,
en er annars 1. stýrimaður á skipinu,
og spurði hann frétta af ferðinni, sem
var allviðburðarík.
♦-------------------------
Brotsjór itndan Hvarfi.
Laugardaginn 31. janúar, kl.
tæplega 6 um morguninn. hafði
skipið siglt um 540 sjómílur frá
Reykjavík og var statt 280 sjó-
mílur frá Hvarfi á Grænlandi.
Myrkur var á og stormur 9—-10
Ljósm.: Jokob H. Hermannsson, vélstjóri á b.v. Gerpi.
Gerpir í harðsdttri veiíliför
vindstig á móti, og var aðeins
sigld hálf ferð. Kom þá brotsjór
á skipið stjórnborðsmegin og
braut 5 glugga í stýrishúsinu, en
brúna hálffyllti af sjó.
Skipstjórinn var að koma út úr
íbúð sinni, þegar sjórinn fossaði
inn í brúna, og stóð hann 1 sjó
upp í háls fyrr en varði. Skip-
stjórinn óð gegnum sjóinn að vél-
símanum og setti á „stanz“ —
síðan á fulla ferð áfram og sneri
jafnframt undan veðrinu.
Sjórinn braut ýmislegt í brúnni
— m. a. hurð í dyrum á gangin-
um aftur í skipið. Ratsjáin lyft-
ist af sæti sínu og slitnaði úr teng-
ingum, gíróáttavitinn skemmdist
og einnig bilaði dýptarmælirinn.
Áður en birti og hægt var að
rannsaka tjónið til fulls, taldi
skipstjórinn sennilegast, að Gerp-
ir yrði að snúa við heimleiðis. —
Skemmdirnar reyndust hins veg-
ar ekki eins miklar og búast mátti
við. Yfirbygging sjálf var óbrot-
in, seguláttavitar heilir, og loft-
skeytamaðurinn taldi sig mundu
nýju fyrirheita, að Drotinn legg-
ur líkn með þraut. Og á þessari
sorgarstund tengjum við geisla
vonarinnar við það, að þeim fjöl-
menna hópi íslendinga, kvenna,
karla og barna, sem um þessar
mundir harma sína látnu vini,
verði sú huggunin bezt, sem felst
í þýðingarmestu orðum Meistar-
ans sjálfs, sem þannig hljóða:
„Ég lifi og þér munuð lifa“. 1 því
trausti, að sú verði huggunin
áhrifamest, sendum við öllu hinu
harmandi fólki beztu kveðjur og
góðar óskir.
Ég bið háttvirta alþingismenn
að taka undir orð mín með því
að rísa úr sætum.
40
VÍKINGUR