Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Qupperneq 11
ur Mechan stálbjörgunarbátur.
Hann var látinn liggja kyiT í eld-
hafinu. Samt var talið rétt að
gera umsvifameiri tilraun og var
þá bátnum fjarstýrt.
Inngangan í bátinn á sér stað
gegnum 4 lúkur, þeim er haldið
aftur af, fljótlokandi klemmum.
1 bátnum er 12.75 hestafla Lister-
vél loftkæld. Hægt er að setja
hana í gang meðan báturinn
hangir í bátsuglunum. Mótorinn
dregur rafal. Þrýstiloftskútur er
í bátnum til að fullnægja loft-
þörf vélar og manna. Reiknað
hefur verið út, að loftþörf vélar
sé 0.85 m3/mín, og að hver mað-
ur þarfnist 0,06m3 lofts.
Þrýstiloftsútbúnaðurinn heldur
yfirþrýsting inni í lokuðum bátn-
um og kemur þar með í veg fyr-
ir reykmyndun.
Þótt kröfurnar séu að bátur-
inn þoli eldinn í 5 mínútur, þá
var tilraunin gerð í 10 mínútur.
Þegar báturinn var settur inn í
eldinn, leit skrokkur hans út eins
og trékol. Útskýrt var að það
væri gerfiharpiksinn, sem tekur
í sig hitann á meðan hann breyt-
ist í lofttegund. Á þann hátt
myndast einangrun milli elds og
báts.
Báturinn var algjörlega umvaf-
inn eldhafinu, sem var meira en
1000° C. Eftir 5 mínútur virtist
einangrunin bráðna og vilja
detta af í flögum. Þegar bátur-
inn hafði verið í eldinum í 10
mínútur var eldurinn slökktur.
Báturinn var opnaður og kom þá
örlítill reykur innan að, en auð-
sjáanlega voru tvær mýs, sem
Hér má sjá hitm einangraSa björgunarbát inni í eldhafinu.
hafðar voru um borð, algjörlega
ómeiddar. Smjörstykki var einn-
ig í bátnum, órunnið, og plastic-
lok með öllu óskemmt.
Hæsta hitastig í höfuðhæð var
talið vera 140°C. Eftir 5 mínút-
ur var hitinn inni í bátnum 60°C,
eftir sex mínútur 70°C, eftir 7
mínútur 100°C og eftir átta mín-
útur 118°C. En þar á eftir fór
hann upp í 140°C.
Læknar telja, að léttklæddur
maður sé í hættu eftir 5 mínútur
í 120°C hita, eftir 4 mínútur í
150°C og eftir 3 mínútur í 180°C
hita.
Tilraunirnar sýna að hægt er
að lifa í svona bát í eldhafi allt
að 7 mínútur, en það er nægur
tími til að bjargast út úr venju-
legum olíubruna á sjó í báti með
sex mílna hraða. — Hitastigið í
sætis- og gólfhæð var verulega
lægra heldur en í höfuðhæð. Gas-
tilraunir sýndu, að kolsýrings-
myndun inni í bátnum var svo
lítil, að hættulaust er talið.
ran
ÞverskurSarmynd af bátnum.
SérfrœSingar rannsaka bátinn ejtir raunina.
VÍKINGUR
215