Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Blaðsíða 21
Pabbi, hvað heitir þessi bygg- ing? — Ég veit það ekki drengur minn. — Hvað heitir þetta vegamerki? — Veit það ekki. — Pabbi, þú ert vonandi ekki reiður vegna þess hvað ég spyr mikið ? — Alls ekki drengur minn, spurðu bara, það er einasta leiðin til að öðlast þekkingu. * Drukkinn maður kekk eftir göt- unni. Annan fótinn hafði hann á gangstéttinni, en hinn í göturenn- unni. Lögregluþjónn, sem sá til mannsins, þreif í öxl hans og sagði: — Komdu upp úr rennunni, þú ert blindfullur! — Guði sé lof, sagði sá drukkni, ég hélt að ég væri draghaltur. * Segðu mállausum leyndarmál þín, og hann mun fá málið. * Kaupmaðurinn við sveitapiltinn, sem var að taka út vörur fyrir hús- bónda sinn: — Og skilaðu svo kærri kveðju til hans Sigurðar míns, að næst þegar hann slátrar nauti, þá megi hann ekki gleyma mér! Ódýr útgerð Fyrir nokkrum árum var skip- stjóri á grísku skipi, sem sigldi undir Costa Rica fána, tekinn fastur í Luleá í Svíþjóð, ákærður fyrir að hafa látið taka kol af farmi skipsins til að kynda undir skipskatlinum. Einn af kyndurum skipsins kærði skipstjórann fyrir yfir- völdum staðarins í bæði skiptin yfir því að skipstjórinn neitaði honum um nema smáhluta af kaupi hans. Ekki er að furða þótt aðrar siglingaþjóðir eigi í erfiðleikum með að keppa við svona „prakt- isk“ útgerðarfélög. VÍKINGUR Fjármálaráðherra Frakka gaf ný- lega skipun um að fjarlægja tvær naktar granitstyttur, sem stóðusín hvoru megin við innganginn að ráðuneytisbyggingunni. — Þær voru alltof naktar, sagði hann við blaðamenn. — Ekki svo að skilja að ég sé siðferðilega hneykslaður, en þegar ég geng framhjá þeim oft á dag, þá minna þær mig óþægilega á hina óham- ingjusömu skattborgara, sem koma á okkar fund, eftir að við höfum fláð þá inn að skinninu. Símon gamli hafði mikinn áhuga á ættfræði og þóttist oft komast að merkilegum niðurstöðum og það svo, að margir voru harla vantrú- aðir. Dag nokkurn kom hann í eldhús- ið til konu sinnar og var mikið niðri fyrir. — Veiztu bara, Guðríður mín, ég er kominn í beinan karllegg af hon- um vellygna Bjarna! — Ónei, ekki vissi ég það nú, — en hinsvegar var mig farið að gruna það núna uppá síðkastið. </. 225

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.