Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Side 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Side 34
Krummi hann er klókur fugl Myndin sýnir tómar fisktrönur, og sést krummi halda sig í návist þeirra. Mesta vandamál þeirra, sem við skreiðarverkun fást og þurfa að ná vel verkuðum og ósködduð- um fiski af hjöllunum, er að vernda hann gegn fugli. Fyrir nokkru las ég smágrein um þetta í norska „Fiskaren“ og endursegi ég efni hennar hér ef verða mætti til leiðbeiningar fyr- ir íslenzka skreiðarverkendur, en á Finnmörkinni, þar sem Norð- inenn verka aðallega sína skreið, er hrafninn hinn mesti vágestur á skreiðarhjöllunum. Þessi rán- fugl yfirgefur ekki hjallana þótt fiskurinn sé orðinn þurr og harð- ur. Hann flýgur með hann í nær- liggjandi vatn eða læk og lætur hann liggja í bleyti þar til hann er orðinn nógu mjúkur til að éta hann. Þannig safnar krummi sér fóðurbirgðum til langs tíma. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að halda hrafninum og öðrum ránfuglum í burtu, en þrátt fyrir net og fuglahræður eyðileggja fuglarnir fisk fyrir þúsundir árlega. Vanalega er stoppaður „mað- ur“ hengdur á stöng á áberandi stað á fiskihjöllunum. Þetta dug- ir aðeins fyrst í stað, en þegar krummi hefir rannsakað þetta með því að fljúga sífellt nær og nær, þá er varðgildið brátt úr sögunni og þegar knimmi er byrjaður að kroppa í skreiðina óhræddur við „hræðuna,“ koma aðrir fuglar og gera slíkt hið sama. Stoppaðar fuglahræður, hengd- ar upp á fiskhjallana er því eng- in viðhlítandi vörn. Tveir Norð- menn áttu skreiðarhjall á nesi nokkru í Norður-Noregi, en þar upp af var brött hlíð og hátt f jall. Hrafnar hafa sennilega átt heimkynni sín í fjallinu. Mennirn- ir hengdu afla sinn á hjall, sem var um 150 metra frá verbúðinni, og varð þá brátt haldinn vörður um hjallann, ýmist af krummum eða fiskimönnunum. Þeir tóku þá til bragðs að búa til auðan bás inn í miðjum fiski- hjallinum og settu þar haglega stoppaða hræðu í vinnufötum og settu hana þar í varðstöðu. Svo eðlilegur var þessi „varð- maður,“ að aðeins vantaði smá hreyfingu á hann til að hann væri lifandi maður. En krummi kann að telja upp að þremur og þeir vissu að úr fjallinu var hverri hreyfingu við hjallann veitt nákvæm athygli. Ilræðan var látin vera í sitjandi stöðu og með staf, sem leit út eins og byssuhlaup. Hún leit ná- kvæmlega út eins og leyniskytta. Það leið hálfur mánuður og enginn hrafn sást, en svo sást hann, en alltaf í mörg hundruð metra fjarlægð, en svo fór hann smámsaman að fljúga nær og nær. Fiskimennirnir hugsuðu nú sitt ráð. Þeir vissu að ef þeir gætu fengið hreyfingu á hræðuna, ef svo liti út að þarna væri maður að vinna undir fiskinum, mundi það hafa sín áhrif. Þeir tóku til bragðs að festa hræðuna upp undir rárnar, með grönnu nælongarni í þeirri hæð að hún dinglaði laus með lopp- una rétt lausa við jörð. 1 hræð- unni voru þrjár festingar og handleggimir hafðir lausir við kroppinn. Við smá vindblæ eða súg gegnum hjallann kom hræð- an til að hreyfast og leit hún þá út eins og maður væri þarna að vinnu. Þetta bragð hreif svo vel, að bæði hrafnar og aðrir fuglar héldu sig í hæfilegri fjarlægð og á þennan einfalda hátt þurftu þessir norsku fiskimenn engar frekari áhyggjur að hafa af vá- gestum fiskihjallsins, sem nú stóðu í þeirri meiningu að lifandi vera héldi vörð. Hvað segja íslenzkir skreiðar- framleiðendur um að nota þessa einföldu aðferð við að fæla hrafninn og aðra fugla frá skreiðarhjöllunum og bjargameð því miklum verðmætum? G. J. 238 VÍKINGUE

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.