Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 8
Þróun björgunarmála á íslandi síðasdiðiðm tvö ár! Islenzka björgunarkerfið hefur tekið ýmsum mikilvægum breyt- ingum síðan Farmanna- og Fiski- mannaþing var haldið síðast. — Merkasta skrefið í þróun björg- unarkerfis okkar er stofnun og framkvæmd tilkynningarskyld- unnar. — Tilkynningarskyldan var að vísu alllengi í ’fæðingu, eftir að allir voru orðnir sam- mála um þá brýnu nauðsyn, sem væri á henni, en að lokum tókst FFSÍ að sameina þá þætti, sem til þurfti, til að tilkynningar- skyldan yrði að raunveruleika. Reynsla okkar af tilkynningar- skyldunni er sú, að auðvelt er að fullyrða, að öryggi íslenzkra sjó- manna hefur stóraukizt með til- komu kerfisins. Nú eftirá vekur það manni undrun, hve stórt skref hefur verið stigið framávið með litlum tilkostnaði. En á sama tíma setur að manni nokkurn beyg við tilhugsunina um það, hve langan tíma það tók okkur að stíga þetta framfaraspor, sem hefur sýnt sig í reynd að vera slík nauðsyn, og sjálfsögð aukn- ing á Öryggi sjómanna okkar, og á ég þá sérstaklega við fiski- mennina okkar á hinum minni fiskibátum. Tilkynningarskyldan er nú orð- in sá raunveruleiki í reynd, að hún verður ekki aftnr tekin fyrr en annað betra kerfi leysir hana af hólmi. Slík breyting er ekki fyrirsjáanleg á næstunni, en þó er hitt nokkurn veginn jafnvíst, að verði stökkbreytingar í fjar- skiptatækni, sem gætu bætt kerf- ið, þá verður skylda okkar að EFTIK ÓI.AF V. SU,I KIIS$»\. oooooooooooooooooo $ <> <> Erinilúy var fluti ú niiyaHta þinfii F. F. S. f. Ólafur V. Sigurðsson. fylgja fast eftir og breyta kerf- inu á hvern þann hátt, sem gerir það auðveldara og stuðlar að auknu öryggi á hafinu fyrir sjó- menn og skip. Okkur tókst í upphafi furðu vel að skipuleggja tilkynningarskyld- una, enda hafa ekki verið gerðar á henni nema mjög óverulegar breytingar frá upphafi. Þetta þýðir hinsvegar ekki það, að við höfum fengið hana af stað eins fullkomna og við vildum, þar á ég við gerð sjókortanna, sem not- uð eru yfir kerfið. 1 upphafi vild- um við, að það sjókort, sem kerf- ið væri kvarðað á, hefði ekki síð- ur notagildi við skipulagningu leitar og björgunar, heldur en við tilkynningu staðarákvörðunar viðkomandi skips. En hér hefur reynslan skorið úr. Tilkynningar- oooooooooooooooooo skyldukortið er ekki nógu fljót- virkt við skipulagningu og fram- kvæmd björgunaraðgerða. — í fyrstu kemur þar til, að kortin eru ekki notuð til siglingar, held- ur aðeins við tilkynningarkerfið. Ennfremur er mælikvarði kerfis- kortsins það lítill, að björgunar- aðgerðir verða ekki skipulagðar í því nema að takmörkuðu leyti. Af þessu leiðir að við höfum ekki það gagn af kerfiskortinu við björg- unaraðgerðir eins og við hugsuð- um okkur í upphafi. Þennan vanda þurfum við að leysa á þann hátt sem viðunandi er, með því að fá Sjómælinga- stofnun Islands til að prenta til- kynningarkerfið í þau sjókort, sem almennt eru í notkun. Þær forsendur, sem voru gegn þessu í upphafi, standast ekki lengur á móti þeim kröfum, sem reynslan hefur sýnt okkur að við þurfum að gera til sjókortanna. Þegar við höfum fengið tilkynningakerfið inn á sjókortin okkar, verður öll vinna við skipulag og fram- VÍKINGUR 212

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.