Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Side 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Side 20
r Er nokkuð koniið á? Það var veizla hjá fyrirtækinu og allir í veizluklæðum. Ein forstjóra- frúin mætti í nýtízku kjól, lilýra- lausum. Hún naut þess að herrarn- ir gáfu henni auga í laumi. í einu danshléinu kom maður hennar til hennar með ungan mann. „Má ég kynna fyrir þér Andersen verkfræðing. Hann er sérfræðingur í burðarþolsfræði og langar til að leggja fyrir þig nokkrar spurning- ar! * „Hvað sagði mamma þín, þegar hún fékk kaffið i rúmið á mæðra- daginn?“ „Hún sagði bara, að það gerði ekkert til. Hún ætlaði hvort eð var að þvo á mánudaginn.“ * Tímarnir breytast. — Áður vann fólk í tólf tíma og það var kallað þrældómur. Nú vinnur það í fjórtán tíma og kallar það eftirvinnu. Ilvaá er liiinii eiginlega afí gera þarna niá'ri allan túnann? 224 * V A K T I N y,______________________y Hinn frægi uppfinningamaður Edison var mjög viðutan. Eitt sinn er hann kom heim, kvartaði hann við konu sína yfir því, að hann hefði orðið að sitja öfugur í klefanum alla leiðina heim. „En góði minn,“ sagði konan, „gastu ekki beðið manninn á móti þér, að skipta við þig um sæti?“ „Það var ekki hægt,“ svaraði Edi- son. „Ég var einn í klefanum." * Á sínum stað! í kirkjugarði nokkrum gat að líta svohljóðandi grafskrift: „Hér hvílir óðalsbóndinn og dánumaðurinn Zakarias Jósepsson. Hans er sárt saknað af Drottni sín- um og nánustu ættingjum." * Farandsirkus sem var á sýningar- ferð um Jótland, fékk sér, í for- föllum annars, eldri bónda, til að gæta dýranna. Daginn eftir sá stall- meistarinn sér til skelfingar, að bóndinn var kominn inn í Ijónabúr- ið og var að skrubba ljónin uppúr sápuvatni. „Ertu ekki hræddur maður!“ hrópaði hann. „Ég, ónei, — dýrin eru skíthrædd, í en ég þvæ þau nú samt!“ * — Hvað starfar þú núna?“ „Ég ferðast um og held fyrir- iestra.“ „Er það alltaf sami fyrirlestur- inn?“ „Já.“ „En ef sömu áheyrendurnir koma aftur?" „Það er engin hætta á því.“ * Presturinn var að framkvæma hjónavígslu. Sér til hrellingar sá hann að honum var ómögulegt að greina á milli kynjanna, sem sam- kvæmt tízkunni voru bæði síðhærð. Eftir nokkra umhugsun sagði klerkur: „Ég verð að biðja annað- hvort ykkar að kyssa brúðina!“ * Anna gamla hafði unnið í heilan mannsaldur. Þegar hún var sjötug, var haldin mikil veizla. Einn veizlu- gestanna spurði gömlu konuna hvort hún ætlaði að vera áfram í vistinni. „Já, hér verð ég til æviloka, en eftir það ætla ég að sjá hvað setur.“ VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.