Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 30
„MARY DEARE‘ Myrkrið í vélarúminu séð af efsta þrepi, var mollukennt og blandað volgri olíulykt. Hrísl- andi gufuhljóð gaf mér til kynna, að vélarúmið væri ekki lengur eins dautt og áður. Ég flýtti mér svo, að ég áttaði mig ekki fyrr en ég var kominn niður á járngólf vélarúmsins og hentist áfram fleiri metra áður en ég stöðvaðist á járnrist. Þegar ég reis. upp og greip and- ann á lofti, heyrði ég gufuhljóð- ið ennþá sterkara og sá að stimp- ilstengurnar og sveifarásar, slógu giampa á umhverfið, með vax- andi hraða og slögum, sem sveif- arásarnir töldu, taktfast og ró- lega, en gáfu til kynna hreyfingu og afl. Ljósavélin var tekin að suða og glóð komin á perurnar, þegar hún herti á sér urðu ljósin skær- ari þar til þau allt í einu fengu fulla birtu. Það lýsti af kopar og stáli og vélarúmið var orðið lifandi lífs- kraftur. Patch stóð á vélsímastallinum. Ég reikaði hálfvankaður milli tveggja smursamstæða. „Vélin", hrópaði ég. — Vélin hreyfðist. Ég var yfirspenntur, því að ég hélt þá, að við mund- um klára okkur af að ná beint til hafnar. En hann hafði þegar lokað fyi ir gufuna, stimpilslögiin urðu hægari og vélin stöðvaðist. „Standið ekki þarna aðgerðar- laus“, hrópaði hann. „Farið og kyndið. Við verðum að ná þrýst- ingnum upp eins og mögulegt er“. Ég leit á hann og sá í fyrsta sinn mann, sem hafði tekið mál- in í sínar hendur. En það er harla erfitt að kynda núna og jafnvel hættulegt fyrir óvaning eins og mig. Hreyfingar skipsins voru snöggar og óreglu- legar og ég missti iðulega vald 234 FRAMHALDSSAGA yfir skóflunni og kolin þeyttust í allar áttir og hittu ekki eldhol- ið, en ég slengdist ýmist á ketíl- inn, eða á Kolaboxin. Ég vissi ekki hve lengi ég stóð þarna og hamaðist við kynding- una, þegar hann kom til mín, en mér fannst það óratími. Ég sá hann ekki koma, því öll mín eftirtekt var bundin við kyndinguna; ég sleppti varla aug- unum af glóandi eldholinu og beitti öllum hugsanlegum við brögðum til að standa klár af veltingnum, svo ég færi mér ekki að voða. Hann tók þéttingsfast í hand- legg minn, og þegar ég leit upp stóð hann álútur yfir mér. Ég rétti úr mér löðrandi af svita og greip andann á lofti. „Ég hefi komið dælunum í gang, sagði hann. Ég kinkaði að- eins kolli. „Ég hefi verið uppi á stjórn- palli, hélt hann áfram; „fram- stefnið er alltaf öðruhverj u í kafi og á hverju augnabliki geta skil- rúmin brostið. „Munduð þér ekki heyra í vél- símanum hingað fram?“ „Ég veit ekki“, svaraði ég, — en ég býst þó frekar við því“. Hann tók mig með sér aftur í vélarúmið, sýndi mér gangsetn- ingarhjól vélarinnar og talrörið upp í stjórnpallinn. „Nú fer ég upp, en þér haldið áfram við kyndinguna, eins og orkið. Ég hringi vélsímanum. Ef þér heyrið, það ekki, skuluð þér koma í talrörið eftir nokkrar mínútur. 0. K. ? Hann hraðaði sér upp úr véla- rúminu, en ég sneri aftur fram í kyndistöðina. Ég var orðinn stirður í baki og handleggjum og varð að þvinga mig til að hefja kolamoksturinn á ný. Ég var orðinn örþreyttur og hugleiddi hversu lengi ég gæti haldið þetta út. Gegnum snarkið frá eldinum og dæluslögin úr vélarúminu, heyrði ég að vélsíminn hringdi. Ég lokaði eldholinu og gekk aftur í vélarúmið. Vísirinn á vél- símanum stóð „Fulla, ferð áfram“. Ég sneri hjólinu, sem opnaði eim- ventla vélarinnar, og í fyrsta skipti skynjaði ég 'þá unun og stolt, sem vélstjóri hlýtur að finna. Þegar gufan þrýstir sér hvæsandi inn á stimplana, vélin tekur að hreyfast með taktföstum slögum og vaxandi orku. Hjarta skipsins hafði lifnað á ný og það var ég, sem hafði kom- ið því í gang! Ég var gripinn fögnuði, og þegar ég greip kola- skófluna og fór að moka aftur inná eldinn fannst mér hún óvenju létt. Þrátt fyrir þreytu- verki í handleggj unum hafði ég aftur öðlast sjálfstraust og bar- áttuþrek. Ég hafði reiknað út, að hægt mundi vera að gangsetja vélina á tíu mínútna fresti og að það tæki þrjár mínútur að ná skip- inu upp í vindinn. Á þessum fáu minútum mundi gufuþrýsting- urinn hrapa niður, og aðeins með því að hamast við að kynda næð- ist þrýstingurinn upp aftur áður en næst kæmi skipun frá stjórn- palli. Klukkan 1530 kallaði hann mig upp til að taka stýrið. „Hafðu gætur á sjórokinu, sagði hann. „Það sýnir vindátt- ina; settu stefnuna nákvæmlega upp í vindinn. Ef það skakkar einu striki, mun skuturinn sam- stundis sveifla skipinu undan. Notaðu stýrið frá því augnabliki, er vélin fer í gang og gleymið ekki að með því heldur skipið stefnunni í allt að fimm mínút- um eftir að vélin hefir stöðvast. Þarmeð var hann horfinn og ég stóð aleinn við stýrið. Það var þægilegur léttir í að standa þarna með ekki þyngra að handleika en stýrishjólið. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.