Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Blaðsíða 6
vexti og veiða hann upp áður en hann hefur orðið kynþroska. Þessar nýju upplýsingar vísindamann- anna eru uggvekjandi fyrir okkur íslendinga, en þær eru jafnframt undirstrikun á því, sem við höfum sagt um þörf okkar á að fá í okkar hendur stjóm á fiskveiðunum í kringum landið, þannig að við getum sett reglur um veiðarnar og bannað þær veiðar sem við vitum að eru hættulegar. Þó að öll íslenzka þjóðin standi einhuga í land- helgismálinu, er málið þó ekki að fullu leyst. Ákvörðun okkar um útfærslu fiskveiðimarkanna er mótmælt af ýmsum þjóðum og tvær voldugar þjóðir í Vestur Evrópu, Bretar og Vestur-Þjóð- verjar, hóta okkur með ýmsum hætti, beint og óbeint. Og Bretar hafa kært okkur fyrir Alþjóða- dómstólnum í Haag, og telja okkur vera bundna af samningi við sig um stækkun landhelginnar frá árinu 1961. Þessum samningum höfum við sagt upp með 6 mánaða formlegum fyrirvara og áður með 12 mánaða tilkynningu um fyrirætlan okkar. Mótmæli Breta og V-Þjóðverja og hótanir þeirra rnunu ekki breyta afstöðu okkar um útfærslu út í 50 mílur 1. september nk. Við höfum hins vegar sagt, að við værum reiðu- búnir til að gera samkomulag til bráðabirgða um nokkurn takmarkaðan veiðirétt erlendra skipa innan hinna nýju marka til þess m. a. að umskiptin fyrir þau yrðu ekki eins tilfinnanleg. í viðræðum þeim, sem fram hafa farið við full- trúa þessara tveggja þjóða, um ágreiningsmálin, höfum við gert grein fyrir sjónarmiðum okkar. Lítið hefur þokaz,t í rétta átt. Krafa okkar er, að frá 1. september nk. höfum við lögsögurétt á hinu nýja landhelgissvæði og getum séð um, að þeim reglum verði hlýtt sem við setjum um veiðarnar. Við viljum útiloka með öllu frá veiðiheimildum verksmiðjuskip sem veiða allt og geta nýtt allt um borð, og einnig stóra frysti- togara. Við viljum tryggja friðinn fyrir öllum togveið- om á ákveðnum svæðum nokkurn tíma á hverju ári, til að draga úr hættulegri smáfiskveiði og til að koma í veg fyrir áníðslu á hrygningarstöðvum. Við viljum tryggja, að hin erlendu skip fái ekki að veiða jafn nærri landinu og verið hefur og að verulega stór svæði við landið verði á vissum árs- tímum fullkomlega laus við ágang erlendra fiski- skipa. Þrátt fyrir marga viðræðufundi við hina er- lendu aðila hefur lítið þokazt í rétta átt að okkar dómi. Krafa þeirra er enn, að skip þeirra fái ó- hindrað að stunda veiðar upp að 12 mílna mörkun- um hvar og hvenær sem er, aðeins háð því, að heildaraflamagn veiðiskipa viðkomandi þjóðar fari ekki yfir tiltekinn árskvóta. Að slíkum kröfum getum við íslendingar aldrei gengið, enda jafngilti það í rauninni því, að við féllum frá útfærslunni að mestu leyti. Á þessari stundu verður ekki um það sagt, hvort samningar kunna að nást á milli okkar og hinna erlendú aðila um bráðabirgðalausn varðandi veiði- heimildir fyrir þeirra skip í íslenzku fiskveiðiland- belginni. Ef til vill næst ekkert samkomulag og þá tökum vð íslendingar því sem að höndum ber í þessu máli. Við vitum, að við erum að ráðast í óumflýjanlegar ráðstafanir. Vald yfir fiskveiðunum á miðunum við landið verðum við að fá, ef ekki á illa að fara á alveg næstu árum. Allt okkar er í veði. Við getum því ekki hikað í þessu lífshagsmunamáli. Þó að við höfum ekki herstyrk til að styðjast við, eins og ýmsar aðrar þjóðir, þá höfum við ýmislegt annað sem veita mun okkur stuðning í hugsanlegum átök- um út af þessu máli. Auðvitað geta Bretar sent herskip sín hingað á miðin eins og þeir gerðu 1958 og 1959. Og auð- vitað geta þeir hópað í kringum herskip sín nokkr- um togurum innan 50 mílna markanna. Þetta vit- um við fullvel. En hitt vitum við líka, að undir herskipavernd er ekki hægt að stunda fiskveiðar við Island með árangri. Þau erlend skip, sem gerast brotleg við íslenzk lög, geta ekki haft eðlileg samskipti við landsmenn. Þau neyðast til að sigla af miðunum til fjarlægra landa til þess að fá viðgerðir og aðra þjónustu. Og hvernig hugsa menn sér, að það geti gengið, að stunda veiðar í skammdeginu við ísland og geta aldrei leitað vars í óveðrum með eðlilegum hætti? Komi til þess, sem ekki verður trúað, að brezk stjórnvöld séu svo skammsýn, að reyna að beita herskipum sínum hér, þá munum við Islendingar beita þolinmæði okkar vitandi um það, að hinir brotlegu verða fyrr e<5a síSar aS gefast upp. Okkar verður sigurinn, en þeirra verða vand- ræðin og skömmin um allan heim, að ráðast með herskipum að vopnlausri smáþjóð. Eg trúi því ekki, að Bretar stefni út í slíka ófæru, eftir þá reynslu sem þeir hafa fengið. En það mega þeir vita, að við Islendingar höfum þegar ákveðið að mæta þeim vanda sem af ofbeldisráðstöfunum myndi leiða, ef ekki reynist mögulegt að ná heiðar- legum samningum um takmarkaðan veiðirétt er- lendra skipa eftir þeim reglum, sem við teljum nauðsynlegt að setja, Að lokum sagði Lúðvík Jósepsson: Sjómannadagurinn í dag mun um allt land, í hverri verstöð, verða dagur heitstrenginga um aukna samheldni í landhelgismálinu. 1. maí, dagur verkalýðsins, varð dagur landhelgismálsins í ár. Sjómannadagurinn í dag verður einnig dagur land- helgismálsins. Gerum hann að baráttudegi fyrir fullum sigri í landhelgismálinu. 222 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.