Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Blaðsíða 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Blaðsíða 44
MINNING Jóns A. Kristjánssonar, skipstjóra Fœddur 19. maí 1893. Dámn 10. maí 1972 Enn í sumum sævarferSum sverfur aS og reynir á. Hvílir þyngst á þeirra her’öum þar sem fyrir eiga aö sjá. Þeir sem bera veg og vanda velja miö og stund í senn, skulu fyrir skipum standa skipstjórar og sfýrimenn. G. !/. K. Þ. 10. maí andaðist á ísafirði Jón A. Kristjánsson skipstjóri. Hann var fæddur á Tirðilmýri á Snæfjallaströnd 19. maí 1893. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Jónsson og Guðrún Ei- ríksdóttir. Með þeim fluttist hann að Bæjum, sem eru rétt innar í Isafjarðardjúpi. Daginn eftir ferminguna byrjaði hann sjó- róðra með Jónasi Jónassyni úr Æðey, sem einnig stundaði veiðar frá Bolungavík. Síðar réðist hann í skiprúm með Karli Löve. Árið 1921 tók hann stýrimannapróf, en hafði þá þegar verið stýrimaður hjá Karvel Jónssyni á Snarfara. Við skipstjórn tekur hann árið 1924 og sama ár kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni Vilborgu Torfadóttur frá önundarfirði. Næstu árin er hann skipstjóri með Bifröst, Sæfara, Kára og Þuríði Sundafylli. Árið 1928 tekur hann svo við skipstjórn á Valbirni IS 13, sem var eign Samvinnufélags ísfirð- inga, en Jón var einn af stofn- endum þess, með Valbjörn var hann í 12 ár þarnæst með Auð- Jón A. Kristjánsson. björn og síðast Finnbjörn, sem var 80 lesta bátur. Stundaði hann aðallega útilegu með línu að vetr- inum, en síldveiðar á sumrum. Þegar hann fór í land var hann búinn að vera nálægt 50 ár til sjós. Jón Kristjánsson var mjög farsæll og fengsæll skipstjóri. Aldrei hlekktist honum á með menn eða skip öll sín skipstjórn- arár. Var hann einkar vel liðinn af skipshöfnum sínum, vegna drengskapar síns og umhyggju fyrir mönnum sínum. Skipstjóra- og stýrimannafél. Bylgjan ísafirði minnist hans með þakklæti og virðingu vegna starfa sinna í þágu sjómanna og þjóðarinnar. H. Hermannsson. STÖKUR eftir Guðmund A. Finnbogason. Guðmundur A. Finnbogason, sem sendi okkur í 4. tbl. frásögn- ina ,,50 ára gömul ferðasaga frá Eyjum og aftur til Eyja,“ er drjúgum meira en fræðaþulur. Hann er hagyrðingur góður, eins og eftirfarandi vísur, sem hann sendi Víkingnum nýlega, bera með sér. LANDHELGIN Heilla þjóðin, hljómgígju hefir stillt með dáðum: Færir út í fimmtíu fiskimílur bráðum. Það er sómi þegar fast, þjóðin tak vill gera, sundruð öflin sameinast, svona á það að vera. Þjóðareining þykir súr þeim, er frá oss plokkar, ganga má ei greipum úr gerður vilji okkar. Einum huga allir vér eflum þjóðarhaginn, svo þann fyrsta september sjáum ,,vöku“-daginn. * Velmegunar vaxtargengd virðist mennig okkar þjóna. Hávaði og háralengd, hækkuð pils og lækkuð króna. VlKINGUR 260

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.