Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1973, Blaðsíða 1
SJÓMANNABLAÐIÐ
VÍKINGUR
35. ÁRGANGUR — 12. TÖLUBLAÐ 1973
Við áramót
eftir Guömund Pétursson
EFNISYFIRLIT:
bls.
Við áramót
Guöm. Pétursson 1
„Bjarni Benediktsson“
kemur að landi 2
Sjóróðrar um aldamótin
frá Stokkseyri
Jónas Jönasson, fyrrv
skipstjóri 6
Meistaraverkið, smásaga
Clark Howard 14
Vitar og hafnir á Islandi og
yfirstjórn þeirra
Jón Eiríksson, fyrrv.
8kipstjóri 18
Sjóspár og ölduspár, viðtal við
Þorbjörn Karlsson, verkfræðing 23
Selandia '•
Hallgrímur Jónsson þýddi 26
Ný skip á árinu 1972 30
Sjóorusta í landi
eftir V. Dybward
G. Jensson þýddi 34
Hvers eigum við að gjalda?
Hinrik ívarsson, Merkinesi 38
Félagsmálaopnan 42
Jón Árnason, skipstjóri
Erlendur Guömundsson 44
Á að stöðva flotann?
Loftur Júlíusson 46
Hornblower fer til sjós
eftir C. S. Forester
Báröur Jakobsson, þýddi 49
Frívaktin o. fl.
Forsíðumyndin er af flota Kvöld-
úlfs í Hesteyrarhöfn á hinum góðu
gömlu dögum.
SJÓMANNABLAÐIÐ
VÍKINGUR
Dtgefandi F. F. S. 1. Ritstjórar:
Guðmundur Jensson (áb.) og örn
Steinsson. Ritnefnd: Böðvar Stein-
þórsson, formaður Páll Guðmunds-
son, varaformaður, Ólafur V. Sig-
urðsson, Karl B. Stefánsson, Haf-
steinn Stefánsson, Bergsveinn S.
Bergsveinsson og Helgi Hallvarðs-
son. — Blaðið kemur út einu sinni
í mánuði og kostar árgangurinn
750 kr. Ritstjórn og afgreiðsla er
að Bárugötu 11, Reykjavík. Utaná-
skrift: „Víkingur“, pósthólf 425
Reykjavík. Sími 15653. Prentað í
ísafoldarprentsmiðju hf.
VÍKINGUR
Tvímælalaust verður 1. sept-
ember talinn merkasti dagur ný-
liðins árs, en þá kom til fram-
kvæmda samhljóða ákvörðun Al-
þingis frá 15. febr. 1972, um út-
færslu íslenzku landhelginnar í 50
sjómílur.
Fiskimenn, sem stundað hafa
veiðar á miðunum við Island,
vissu bezt hver lífsnauðsyn þjóð-
inni var á því að færa fiskveiði-
lögsöguna út þar sem fiskveiðar
fóru þverrandi með hverju árinu,
sem leið. Ásókn erlendra veiði-
skipa á miðin samfara óaðgæti-
legum veiðum okkar eigin skipa
réðu þar mestu um.
Það var vitað af fyrri reynslu
að erlendar fiskveiðiþjóðir, sem
hér höfðu hagsmuni að gæta
myndu ekki fallast á rök okkar í
málinu. Hinu hafa þeir gleymt,
að þegar Islendingar standa sam-
huga um lífshagsmunamál sín þá
verða þeir ekki sigraðir. Það er
aðeins tímaspursmál hvenær við
fáum fulla viðurkenningu á út-
færslu landhelginnar, en ekki
hvort við fáum hana.
Þrátt fyrir stórlega stækkun
á okkar eigin veiðisvæðum þá má
öllum vera ljóst að fara verður
með mikilli gát að öllum veiðum,
friða þarf ákveðin svæði þar, sem
vaxtarskilyrði fyrir fiskistofnana
eru bezt, og á þann hátt að auka
veiðina þegar tímar líða. I þessu
efni reynir á þegnskap og skiln-
ing okkar sjálfra.
Fátt er það sem F. F. S. I. hef-
ur beitt séf jafn ákveðið fyrir
og aukning togark''í ,Jfiskiskipa-
í 1 h rt ? 1
Guðmundur Pétursson,
forseti F. F. S. í.
flotann. Nú mun sá draumur ræt-
ast að verulegu leyti á hinu ný-
byrjaða ári þar sem vitað er
að þá fjölgar þeirri skipagerð í
ríkara mæli en þekkst hefur áður.
Á það hefur verið bent hversu
óhagstætt það er að endurnýja
skipastólinn í jafn stórum stökk-
um og nú á sér stað, en langur
tími líður á milli þar sem engin
ný skip bætast við. Þetta hefir
þær afleiðingar að við drögumst
aftur úr öðrum fiskveiðiþjóðum
um skipagerð þau tímabil, sem
ný skip bætast ekki í flotann. Það
verður því mikið átak bæði fjár-
hagslegt og tæknilegt, að endur-
nýja skipastólinn þegar að því
kemur.
Nú ríður á að þessi nýju skip
verði mönnuð færustu mönnum á
1