Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1975, Blaðsíða 2
skuli hafa svo næman skilning á þessu efni. Eg tek hér traustataki nokkrar glefsur úr grein Jóhanns. (Hann skrifar þetta með ell- efu hundruð ára afmæli byggðar norrænna manna á Islandi í huga). ,,Með skipi nam Ingólfur Arnarson Island . . . Fyrir tilkomu skipsins fæddist þjóðin . . . Það hefur verið fóstra allra kynslóða Islands í ellefu hundruð ár . . . Skipin eru göfugasta „stétt“ íslands. Heyja aldrei verkföll, þiggja aldrei laun .. . Milli manns og hests og hunds liggur leyniþráður. Síst veikari þræðir munu tengja sjómanninn og skipið hans . .. Hildar- leikur skipsins við ógnir hafsins, töfrabrögð þess gegn ægivaldi hafsjóanna, að verjast eða sökkva ella, hóflegt samspil þess við þann sem um stjórnvölinn heldur, svo vart verður á milli séð hvors vilji það er sem ræð- ur, hlýtur að skapa djúpstæð tengsl og hrífa hvern þann, sem sjálfur hefur þannig teflt við dauðann um lífið . . . Hvergi finnst feg- urra form né fullkomnari reisn en fagurbúið skip.“ Það má af grein dr. Jóhanns ráða, að fyrir honum vaki m.a. að íslenska þjóðin slíti ekki tengslin við skipið. Það höfum við heldur ekki gert. Við eigum nú mörg og góð skip. En við höfum tapað öllum okkar farþega- skipum, bæði þeim sem eru í utan- og innan- landssiglingum, að Akraborginni og nokkr- um póstbátum frátöldum. Farþegaskip eins og það, sem Ingólfur nam Island á, sést held- ur ekki lengur, hvorki á sjó né þurru landi. Jóhann minnist hingaðkomu Ingólfs Arnar- sonar á skipi. Á annan hátt gat hann auð- vitað ekki komist frá Noregi til Islands. Og allt fram á síðustu áratugi hafa skip verið eina farartækið, sem gerði okkur kleift að hafa samband við umheiminn. Ég tel það því ekki aðeins viðeigandi heldur alveg sjálf- sagt að skip eins og skipið hans Ingólfs — og annarra landnámsmanna — verði smíðað hér á íslandi nú á þessum 11 hundruð ára tímamótum til minningar um landnámið. Þetta skip var kallað knörr. I apríl s.l. (1974) var stofnað félag, sem hefur það á stefnuskrá sinni, að vinna að stofnun sjóminjasafns og styðja starfrækslu þess . . . og að vinna að því, að smíðaður verði knörr sem líkastur því er þeir voru á landnámsöld. Verði hann síðan varðveittur í sjóminjasafninu. Margir góðir menn hafa skrifað um þetta mál í blöð og tímarit og hef ég lagt nokkur orð í þann belg. Of langt mál yrði að rifja það allt upp hér. Nú vil ég gera að tillögu minni, að menn skipti með sér verkum, að þeir sem peninga- ráð hafa, eða þeirra geta aflað, taki að sér að kaupa og reka farþegaskipið, en að sjó- menn, hvar sem þeir eru á landinu, sjái um knarrarsmíðina og sjóminjasafnið, án þess þó að útiloka annarra stétta menn frá þátt- töku. Stöðugt er unnið að söfnun minja í sjó- minjasafnið, en lítið hefur gerst varðandi smíði knarrar. Stafar það ekki af áhugaleysi forráðamanna, heldur af því að teikningar hafa ekki fengist ennþá frá Hróarskeldu í Danmörku, þar sem leyfar af knerri fundust fyrir nokkrum árum. Sjóminjavörðurinn þar hefur lofað að láta okkur í té þessar teikn- ingar eins fljótt og unnt er, og er engin ástæða til að ætla annað en að hann haldi það loforð, því hann hefur sýnt þessu máli velvilja frá því fyrsta. Og svo er það afl þess er gera skal, pen- ingarnir. I tillögu minni um að sjómenn taki að sér að sjá um knarrarsmíðina er sú hug- mynd fólgin, að þeir stofni sjóð — knarrar- sjóð — og leggi hver sjómaður fram 5—10 þúsund krónur sem stofnfé. Vilji einhverjir láta meira af hendi rakna er þeim það frjálst. Fimm til tíu þúsund krónur eru ekki miklir peningar nú á dögum. Heppilegast tel ég að stjórnir sjómannafélaganna hafi um þetta forgöngu, hver innan sinna vébanda. Þó að það verði ekki stór upphæð, sem safnast á á þennan hátt, þá ætti það að nægja til að koma verkinu af stað, og hálfnað er verk þá hafið er, segir máltækið. Og þegar VÍKINGUR 34

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.