Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 17
Jónas Sigurdsson, skólastjóri Stýrimannaskólans: Umræður um menntun sjómanna Vegna umræðna um fræðslumál sjómanna í 7. tbl. Víkingsins vil ég biðja ritstjóra blaðsins fyrir nokkrar athugasemdir frá mér. Fyrir það fyrsta virðist mér þeir, sem þátt tóku í umræðunum hafa f remur litla vitneskju um það starf, sem fer fram í Stýrimannaskólan- um, þó þeir telji sig geta rætt það og fellt sinn dóm. Hefði ekki verið úr vegi að bjóða mér eða starfandi kennara við skólann að taka þátt í þessum hringborðsumræðum sem að verulegu leyti snerust um kennsluhætti í Stýrimannaskólan- um. í umræðunum svo og í ritstjóra- spjalli kemur fram sú skoðun að tengsl skólans við þá reynslu, sem fæst við störf á hafi úti, sé of lítil og reynsla fiskiskipstjóra ekki nýtt fyrir memendur. í þessu sambandi vil ég geta þess að síðastliðin 20 ár hefur starfað við skólann kennari sem hefur náð miklum árangri í veiðitækni. Á sumrin hefur hann verið starfandi skipstjóri á fiski- skipum og verið toppniaður á því sviði. Hann hefur haft með hönd- um sérstaklega kennslu í fiskleit- artækni og efa ég að aðrir betri fengjust til þess. Þess skal getið jafnframt að hann hefur kynnt sér þessi mál á Norðurlöndum, í Kanada og Bandaríkjunum. Tveir aðrir siglingafræðikennarar hafa fengið ársleyfi frá kennslu til endurmenntunar og ég leyfi mér að fullyrða að skólinn hefur á að skipa mjög færu kennaraliði sem fylgist með nýrri tækni. Að því er snertir fiskleitartækni vil ég taka fram að skólinn á fisk- leitartæki, sem algengast er um borð ísl. fiskiskipum, og námsefni hefur verið tekið saman. Hvað varðar menntun fiskimanna, sem hefur verið aukin verulega á seinni árum, þori ég að fullyrða að við stöndum ekki að baki Norður- landaþjóðunum eða öðrum þeim fiskveiðiþjóðum sem ég þekki til. Tækjakennsla almennt við skólann hefur verið aukin verulega á seinni árum einkum eftir að skólinn fékk radar-samlíki. Þar læra nemendur að sigla eftir radar bæði siglingu nálægt landi (hægt er að setja strandlengju inn á radar- skerminn) og einnig hvernig haga beri siglingu gagnvart öðrum skip- um við mismunandi aðstæður, því hægt er að setja alls sex skip aukalega inn á radarskerminn auk eigin skips. Allir nemendur 2. stigs verða að Ijúka námskeiði í radar- siglingu og hljóta sérstakt skír- teini eftir það. Við samlíkinn hefur verið tengt Loran C tæki og veit ég ekki um aðra skóla sem slíka samtengingu hafa. Verkfræðideild Háskóla íslands leysti hið tækni- lega vandamál í sambandi við Lor- an C tengingu, svo nú geta nem- endur auk radar siglingar einnig siglt eftir Loran C staðsetningum. Auk tækjakennslunnar í skól- anum fá svo nemendur 2. stigs og 3. stigs að fara 3ja daga æfingaferð með varðskipum ríkisins undir leiðsögn kennara og skipstjórnar- manna varðskipanna. Þessi skip eru búin mjög fullkomnum sigl- ingatækjum og hafa þessar ferðir verið vinsælar meðal nemenda og eru nokkur uppbót fyrir það að skólinn hefur ekki yfir að ráða VÍKINGUR 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.