Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 30
Góðri humarvertíð lokið:
Minnkandi sókn
og betri afli
— Mér sýnist á öllu að í sumar
fáist besti afli á bát og þá einnig
besti afli á hverja sóknareiningu
síðan 1971. Þetta sagði Hrafnkell
Eiríksson, fiskifræðingur í stuttu
viðtali við Víking daginn eftir að
humarvertíðinni lauk.
— Tvímælalaust er humarinn í
sumar jafnstærri en undanfarin ár.
Á ákveðnum svæðum er að vísu
mikið af smáhumri, en yfir höfuð
er humarinn stærri en verið hefur.
Veiðin byggist mikið á árgöngum
frá því í kringum 1970.
— Allar aðstæður hafa verið
góðar í sumar, sjórinn hlýr og
gæftir góðar. Um mánaðamótin
júní—júlí mældist sjórinn víða 10°
heitur undan suðurströndinni.
Botnhitinn var á sama tíma 7—8°.
— Vertíðin hófst í ár 24. maí og
lauk 30. júlí. Kvótinn var 2500
tonn, eins og tvö undanfarin ár, en
þá veiddist ekki upp i hann. f fyrra
var vertíðin framlengd út ágúst-
mánuð. Frá sjónarmiði okkar á
Hafrannsókn er æskilegt að veiði-
tímabilið sé milli 15. maí og 15.
ágúst, og byggjum við þetta á
gamalli reynslu. Fyrir 15. maí er
humarinn óvíða kominn upp, og
þegar haustar minnkar oft veiðin
vegna versnandi veðurfars og þá
gætir líka meira fisks í afla.
— Rúmlega 80 bátar fengu leyfi
til humarveiða í ár, og er það svip-
uð tala og í fyrra. Ekki er vitað enn
hve margir nýttu leyfin, en í fyrra
voru þeir um 60. Fyrir þremur ár-
um og um árabil var bátafjöldinn
vel yfir 100, svo að hér er um
minnkandi sókn að ræða.
Þetta hefur verið góður humar í sumar.
Einar Hannesson (t.h.) er ánægður með
vertíðina.
30
VÍKINGUR