Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 51
Sigurbjörn Guðmundsson, stýrimaður:
Jafnlaunakerfí
á dönskum skipum
Sennilega búa engir þjóðfé-
lagsþegnar við jafn sveiflukennd-
ar tekjur og sjómenn. Því fylgja
svo ómæld vandræði í þjóðfélagi
voru, sem býr við einhverja al-
ræmdustu verðbólgu sem fyrir-
finnst á norðurhveli jarðar, og
þótt víðar væri leitað. Danir búa
við talsverða verðbólgu, en hafa
þó oftast getað skrifað hana með
einum tölustaf.
Þó nokkur skipafélög hafa tekið
sig til og samið við stéttarfélögin
um jafnlaunakerfi um borð í
skipunum, og svo í fríi. Er tekið
vegið meðaltal af skipunum um
ákveðinn tíma (eftirvinna og öll
tillegg lögð saman og deilt í á árs-
grundvelli). Við þetta vinnst
margt. Menn komast í frí örar en
samningar gera ráð fyrir, fjár-
hagsieg vandamál verða öll léttari,
þegar menn vita nánast upp á
krónu hverjar árstekjurnar verða
og með litlu fráviki, hvenær þeir
komast í frí og hve langt það
verður.
Ég tek hér fyrst Dannebrog
Rederi, félag með skip frá
5000—80 000 tonn dw., sami
launataxti fyrir öll skip, og miða
við 5 ára starfsaldur. Frídagar eru
ca 15,2 pr. mán., orlofsdagar
meðtaldir. Tek mér bessaleyfi til
að áætla eina danska krónu sem
100 íslenskar (verður það eflaust,
er þetta birtist).
d. kr. pr. mán.
Yfirstýrimaður (allt innifalið)................... 13 719
5 ára aldurstillegg.................................... 946
Fjarlægðatillegg ............................. . ..____5^7
Um borð gerir þetta alls 15 182
í fríi 13.719 + 946 + 1.500 (kostpen.) alls 16.165 d.kr.
Árið 8X 15.182 = 121.455 d.kr.(verutíminn um borð)
Árið 4X 16.165 + 64.660— (fri heima)
Áriðalls 186.115 d.kr. eða 18.611.500 íslenskar krónur
d. kr.
2. stýrimaður: (allt innifalið) .................... 12.304
5 ára aldurstillegg.................................... 946
Fjarlægðatillegg ............................. . . .___487
Um borð gerir þetta (pr. mán) alls 13.737
í fríi 12.304 + 946 + 1500 (kostpen.) alls (pr. mán.) 14.750
Árið 8X 12.727 = 109.896 d.kr. (Um borð)
Árið 4X14.750 = 59.900 (Heima)
Árið alls 168.896 d.kr. eða 16.889.600 ísl. kr.
d.kr.
3. stýrimenn (allt innifalið) .......................... 11.071
5 ára aldurstillegg........................................ 946
Fjarlægðartillegg ......................................... 487
Um borð gerir þetta (pr. mán.) alls 12.504
VÍKINGUR
51