Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 54
Fljótaskip endurbyggð
Skip þjóðanna eru, ef vel er að
gáð, stór hluti af sögu þeirra og
menningu. Þau eru tákn þjóðanna.
Víkingaskipið er tákn norrænna
þjóða, kínverska junkan ber hinn
austurienska svip og hinar hol-
lensku huggortur minna okkur á
sæfara Niðurlanda, síldveiðar og
hval.
Á sama hátt er hjólaskipið
einskonar tákn fyrir Bandaríki
Norður-Ameríku, fljótaskipin,
sem einna fyrst gerðu ferðalög al-
mennings möguleg um víðfeðm
vatnasvæði, og skipin fluttu varn-
ing og landnema; venjulegt fólk,
sem freistaði gæfunnar í nýrri
veröld, líka allskonar furðufugla,
regngerðarmenn, spilahunda og
dularfullar konur — og þjóðsagan
varð til, og það komust á öruggar
samgöngur fyrir afurðir og fólk.
Memphis varðveitir
sögu
En margt hefur breyst. Járn-
brautir, steinlagðir þjóðvegir,
flugvellir og útgráfnir skurðir og
aukið vatnsdýpi á stórfljótum
Bandaríkjanna hafa fyrir löngu
útrýmt fljótaskipunum sem slík-
um, þótt örfá hafi varðveist, og þá
einkum sem skemmtiskip handa
fólki, sem ekki hefur annað að
gera í svipinn en að sigla með
fornfrægum skipum. En þetta
hefur verið brösótt útgerð, eink-
um þar sem viðhald hjólaskip-
anna hefur verið dýrt og þá um
leið ofviða þeim tekjustofnum
sem þau höfðu, sunnudagsfólk og
ferðamenn, því þetta eru gríðar-
stór, gamaldags skip, sem taka
hundruð farþega.
Um þessar mundir er verið að
gera mikið átak í nágrenni
Memphis, til þess að reyna að
varðveita hluta af upprunalegri
mynd þessa vota lands á bökkum
Missisippi-fljótsins. Meðal annars
er gert ráð fyrir að friða stórt
svæði á árbökkunum, þar sem
hundruð manna geta gengið um
og kynnst landinu einsog það
hefur litið út í árþúsundir, og lögð
er sérstök áhersla á að kynna for-
sögu landnámstímans á 18. og 19.
öldinni og meðal annars verða
endurbyggð fljótaskipin sem til
eru, og verða þau nú færð til upp-
runa síns að svo miklu leyti sem
það er unnt. Á myndinni sjáum
við tvö af þessum skipum, en það
eru DELTA og MISSISIPPI
QUEEN sem einsog myndin ber
með sér eru ekkert smásmíði.
Steamboat nefna Bandaríkja-
menn þessi skip, og nú ætla menn
að þau fái nýtt og betra hlutskipti,
því gert er ráð fyrir að milljónir
manna muni leggja leið sína í hinn
nýja þjóðgarð á ári hverju og
margir munu nota tækifærið til
þess að sigla með alvöru steam-
boat á hinu þunga fljóti Missi-
sippi.
54
VÍKINGUR