Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1980, Blaðsíða 64
Tvö ný ekjuskip (ro-ro skip) tU Eimskipa ■ ■■■ í júní undirritaði Eimskipafé- lagið samning við tvö dönsk skipafélög ATLAS A/S og MER- CANDIA um leigu á tveimur systurskipum, sem félögin eiga. Fyrra skipið var afhent Eimskip þann 12. ágúst og var því gefið nafnið „ÁLAFOSS“. Álafoss sigldi frá Frederikshavn í sína fyrstu ferð 19. ágúst til Felixstowe, Rotterdam og Hamborgar. Síðara skipið verður afhent í byrjun september, og verður því gefið nafnið „EYRARFOSS". Skipin eru leigð til 12 mánaða á þurrleigusamningi (bareboat- charter) framlengingarréttur er til 12 mánaða, en Eimskip hefur kauprétt á skipunum. Álafoss og Eyrarfoss eru ekju- skip. Það er nýyrði fyrir ro-ro skip, sem enn á sér ekki festu í málinu. Þau eru s'ysturskip, smíðuð hjá Frederikshavn Værft í Danmörku, 1599 brúttórúmlestir að stærð lengd er 105.6 metra, breidd 18.8 metrar. Aðalvél er af MAK gerð 4.500 hestöfl. Þrjár Mercedes Benz diesel hjálparvélar eru í skipinu. Ganghraði skipsins er 15.5 mílur á klukkustund. Flutningageta skipsins er 3.620 tonn (dwt), en flutningarými 364.000 rúmfet. Ákverðið er að lesta og losa nýju skipin í Sundahöfn. Óframkvæm- anlegt er að afgreiða þau í gömlu höfninni, þar sem athafnarými er of lítið á hafnarbökkum og örðugt að koma við nauðsynlegum tækjabúnaði Tvö skip Eimskipafélagsins hafá nú verið seld, Álafoss og Kljáfoss, og tvö eru á söluskrá, Reykjafoss og Skógafoss. Tveir stýrimenn eða þrír? Deila er komin upp milli Stýri- mannafélags íslands og Eim- skipafélagsins um mönnun á nýju skipunum tveimur Álafossi og Eyrarfossi. Að sögn Baldurs Hall- dórssonar, varaformanns Stýri- mannafélagsins, vill Eimskipafé- lagið manna skipin samkvæmt dönskum reglum, en það þýðir að stýrimenn verða tveir á skipi. En samkvæmt íslenskum lögum um atvinnuréttindi skipstjórnar- manna eiga stýrimenn að vera þrír á skipum yfir 1500 brúttórúmlest- ir. — Yfirmenn skipsins, sagði Baldur, eru ráðnir samkvæmt úr- skurði kjaradóms, sem gildir um kjör farmanna á íslenskum skip- um, en mönnunarákvæðin sem Eimskip fer eftir eru dönsk. Það er skoðun Stýrimannafélagsins að ekki sé hægt að slíta í sundur mönnunarákvæði og laun og kjör viðkomandi manna. Við höfum haft samband við danska stýri- mannafélagið og njótum fulls stuðnings þess í málinu, sagði Baldur. Þegar Víkingur fór í prentun voru líkur á að deila þessi mundi leysast. 64 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.