Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Blaðsíða 8
Fiskveiðar — Fiskvernd
Dagblaðið Vísir birti þann fyrsta nóvember s.l.
viðtal við Jak ob Jakobsson, fisk ifrœðing, þar sem
almennt er vikið að fiskveiðimálum. Að loknum
inngangsorðum viðtalsins gefur að lesa: „Haf-
rannsóknarstofnunin hefur orðið fyrir miklu að-
kasti og svo kann að virðast að traust þjóðarinnar
á henni sé fallandi“. Svo mörg eru þau orð. Um
almenningsálitið skal ekki dœmt hér, en svo virð-
ist vera að fiskifrœðingar hafi einatt stikað út fyr-
ir ráðgjafastarfssvið sitt og sei/st í stjórnartaum-
ana, en um þá eiga einir að halda stjórnmála-
menn. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra og
rýrir álit fólk á vísindalegum störfum fiskifrœð-
inga. Akvarðanir sem skipt geta sköpum fyrir
þjóðarbúið hljóta að liggja hjá mönnum sem
kjörnir eru til stjórnunarstarfa í landinu, en á
hinn bóginn er sjálfsagt að þeir Jeiti álits fiski-
frœðinga þegar t.d. er um aflatakmarkanir að
ræða vegna meintrar ofveiði einhvers fiskistofns-
ins.
Jakob Jokobsson lætur hafa það eftir sér í áð-
urnefndu blaðaviðtali að spár fiskimanna fari
saman við spár fiskifræðinga ef þeir telji að
stofnarnir séu á uppleið, en að það hái þeim
(fiskimönnum) að þeir eigi eðli málsins sam-
kvæmt oft mjög erfitt með aðfáyfirlityfir hlutina,
vegna þess á h ve afmörkuðu svœði þeir séu staddir
hverju sinni. Ég vona aðJakob Jakobsson geri sér
grein fyrir því, að fiskimenn sem eru á sjónum adt
árið um kring vita jafn langt nefi sínu um fisk-
gengdina í sjónum. Reynslan er ólygnust þar sem
annarsstaðar.
Þegar fiskifræðingar halda því fram að sjó-
menn hafi ekki nœgilegt yfirlit yfir þróun stofn-
anna, þá held ég því fram að þeir séu oft þeir
fyrstu, sem láta frá sér heyra um yfirvofandi
hættu.
Ég held að bæði Jakob og fleiri fiskifrœðingar
hljóti að muna eftir fyllsta stuðningi við hug-
myndir þeirra og að fiskimenn hafa á stundum
lagt til þrengri veiðiheimildir en fiskifrœðingar
höfðu jafnvel hugsað sér í upphafi.
Vonandi slitnar ekki upp úr þeirri ágætu sam-
vinnu sem ég tel að hafi verið á milli þessara aðila
°g þó fjúki dreif á milli banda þá jafni menn sig og
taki upp léttara hjal en nú virðist heyrast þessa
haustdaga.
Ingólfur Stefánsson.