Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Qupperneq 12
útvarpi um kæruleysi skip-
stjórnarmanna linni. Ella
verði sektarákvæðum beitt
við ítrekuð brot.
H. Þingið skorar á útgerðar-
menn íslenskra skipa að hefj-
ast nú þegar hánda í sam-
vinnu við sjómannasamtökin
urn fræðslu fyrir sjómenn
hvað viðkemur öryggistækja-
búnaði um borð, svo og not-
kun þeirra.
í þessu sambandi verði
þeim aðilum er að öryggis-
málum sjómanna standa, veitt
verulegt fjármagn af ríkis-
valdi til framleiðslu á mynd-
snældum til fræðslu fyrir sjó-
menn um öryggismál.
Jafnframt að felld verði
niður öll aðflutningsgjöld af
myndsegulböndum til not-
kunar um borð í íslenskum
skipum.
I. Þingið hvetur Siglinga-
málastofnun ríkisins, Slysa-
varnafélag íslands og Sjó-
slysanefnd til að vinna að
frekari athugun á björgunar-
neti Markúsar B. Þorgeirs-
sonar.
.1. Þingið minnir aðildarfélög
sín á að benda sjómönnum á
eigin ábyrgð á því. að fram-
fylgja öllum lögum um ör-
yggisráðstafanir og öryggis-
búnað um borð í íslenskum
skipum.
Ástþór Jónsson sjómadur í Eyjum:
LengríM
eða kerlingamar
ogkrakkarnir
meö um borö
„Það er vægast sagt undarlegt
að sjómenn, sem strita sennilega
helmingi meira en allir aðrir og eru
auk þess langtímum fjarri heimil-
um sínum, skuli ekki búa við betri
kjör. Annaðhvort verðum við að fá
kerlingamar og krakkana með
okkur um borð eða fá lengri frí til
heimaveru, sem byggðist á því að
laun okkar væru betri á meðan við
værum á sjónum“, sagði Ástþór
Jónsson, sjómaður frá Vest-
mannaeyjum og jafnframt yngsti
þingfulltrúinn, í viðtali við Víking.
„Þetta er ekki mannsæmandi
líf, 30 tíma löndunarstopp fyrir
togarasjómenn er alltof stutt,
maður er alltaf eins og ókunnugur
þegar maður kemur í heimahöfn.“
Ástþór byrgaði 16 ára á sjó, fyrst
á fiskitrolli og svo á almennum
veiðum smærri Eyjabáta, uns for-
vitnin leiddi hann á togara og
hefur hann verið á Vestmannaey í
tvö ár, eða þartil fyrir sex mánuð-
um að hann réði sig á ferjuna
Herjólf. „Ég gerði þetta til að
slappa aðeins af og geta verið
nteira heima, en annars kalla ég
þetta enga sjómennsku í saman-
H
„Eðlilegra að starfandi sjónicnn kæmu
sjálfir á þingið að ráða rnáluin sínum, enda
dómbærastir á hagsmunamál sín.“
burði við fiskiríið, það vantar alla
spennuna, þótt mér líði annars vel
á Herjólfi.
Ég ákvað að hætta á bátnum og
fara á togara m.a. til að geta alltaf
gengið að mínum sex tíma hvíld-
artíma þar. En svo þegar á hólm-
inn var komið, spurði maður sig
ekki um hvort maður ætti heldur
að fara í koju eða standa áfram ef
30 til 40 tonn voru í mótttökunni
og rótfiskirí, — maður stóð áfram.
Það er ekkert spursmál um borð í
togurunum hvort koma eigi fisk-
inum sem bestum í lestarnar eða
að fara í koju. Þrátt fyrir öll lög
velja áhafnirnar þegjandi fyrri
kostinn.
Þrátt fyrir allt er ég ekki á leið-
inni í land, nema eftilvill til að
skreppa í Vélskólann, en að því
loknu aftur á fiskirí. Ég tek Vél-
skólann framyfir Stýrimannaskól-
ann, því ef ég vil eða þarf að fara í
land á miðjum starfaldri, nýtist sú
menntun mér í landi. Það er eins
og þessi sjómennska festist í
manni ef maður fer einusinni á
sjó.
Þar sem þetta er fyrsta þing, sem
Ástþór situr, spyrjum við hann
hvemig honum lítist á þinghaldið
og hvort það sé í samræmi við það,
sem hann bjóst við.
„Það sem vakti fyrst furðu mína
var hversu margir þingfulltrúar
VÍKINGUR