Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Síða 16
nú. hvort við fylgjum úrsögninni
eftir“ sagði Rúnar, er Víkingur
ræddi við hann á miðju þinghaldi.
i þinglok varð ljóst að félagið
hyggst vera áfram í Sambandinu.
Annars fannst Rúnari sem of
lítið hefði veri rætt um raunveru-
leg kjör sjómanna framan af
þinginu. Borið hefði á tillögum,
sem honum fannst ekki koma
málinu við', þótt margt gott hafi
komið fram. þetta er fyrsta þing
Rúnars og sagðist hann hafa frétt
að þingin væru mikið að „yngjast
upp“, þar skipuðu nú æ fleiri
starfandi sjómenn sæti, sem hann
taldi góða þróun.
Hvaða hagsmunamál kom þér
fyrst í hug, svona í f jótu bragði?
„Það eru lífeyrissjóðsmálin
vestra. Við erum í lífeyrissjóði
Vestfjarða og hann greiðir hrika-
lega léleg eftirlaun, sem fyrst og
fremst starfar af því að sjómenn
greiða of lágt hlutfall launa sinna
til sjóðsins. Það stendur væntan-
lega til bóta innan tíðar. Þá álít ég
50 til 55 ára eftirlaunaaldur sjó-
manna raunhæfari en 60 ára, eins
og hann er nú, eða að þeir komist á
eftirlaun eftir 20 til 25 ára sjó-
mennsku og fái þá mannsæmandi
eftirlaun. Eftir þá starfsævi eru
sjómenn almennt búnir að skila
fullu lífsstarfi, við erum nefnilega
mun flótari að því en aðrir, með
tilliti til tíma svo ekki sé talað um
erfiði og félagslegar aðstæður“,
sagði Rúnar að lokum. □
Ólafur Þór Ragnarsson var einn full-
trúa Sjómannafélags Reykjavíkur á
nýafstöðnu Sjómannasambands-
þingi. Ólafur er hagmæltur vel, auk
þess sem hann hefur skráð sögur og
frásagnir í „Leirubækur" sínar. Hann
lét eftirfarandi vísurfjúka á þinginu:
Sjómanna-
sambandsvísur
— ort á nýafstöðnu þingi sambandsins
Orð.
Fyllist ég af kvíða og kvefi
kaldur nálgast vetur.
En syngur hvor með sínu nefi
Sigfinnur og Pétur.
Samningamálin.
í samningsþófinu brotið er blað
beðið að ríkisstjórn hrynji.
Hvern andskotann varðar Þorstein
um það
þó alþýða manna stynji.
Aldrei í sögunni hefur það hent
að haft væri að því gaman.
Þó Guðmundur Jaki pantaði pent
pulsu með öllu saman.
Trillukarlavísur.
Fréttin virðist voðaleg
vá er fyrir höndum.
Ef trillukarlar velja veg
vandamáls í böndum.
Um iðju slíka hefur hátt
Hjaltason með nöldur.
Um sína útgerð segja fátt
Sigfinnur og Skjöldur.
16
YÍKINGUR