Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Side 25
Friðrik Sigurðsson:
Nor-Fishing ’80
Síðari grein
Bátar og skip
Ýmsar skipasmíðastöðvar
sýndu framleiðslu sína á Nor-
Fishingog þótti mér áhugaverðust
ný tegund báta sem eru að ryðja
sér til rúms nú við Noregsstrend-
ur.
A.s. Vaagen Verft sýndi teikn-
ingar og líkan af bát sem þeir kalla
„Ruggen“. (Sjá teikningu). Helstu
mál eru: Lengd alls 60.00 fet,
breidd: 21,8 fet, djúprista 9.2 fet,
lestarrými 1700 cubic fet, olíu-
tankar 12.7 tonn og ferskvatns-
tankar 6.0 tonn. Skrokkurinn er
byggður úr stáli eftir ströngustu
kröfum DetNorske Veritas. Þilfar
úr 6 mm stáli en síður úr 7—10
mm stáli. Brúin er úr áli. Alls getur
verið 6 manna áhöfn á bátnum.
Báturinn er þannig hannaður að
hann er hægt að nota til allskyns
veiða svo sem línu, nót og tog-
veiða. Framleiðendur bátsins
voru mjög bjartsýnir á framtíð
bátsins og töldu sig hafa hér með
komið með á markaðinn mjög
fjölhæfan bát og bentu jafnframt
á að áður hafa verið gerðar til-
raunir með fjölveiðibáta í 60 feta
flokknum en án árangurs.
Auk bátsins frá A.s. Vaagen
Verft hefur Sjávarútvegsrann-
sóknastofnunin í Tromsö látið
byggja fyrir sig hjá Kystvágen Slip
og bátbyggeri 60 feta fjölveiðibát.
Svipar þessum bát mjög til
„Ruggen“, en helstu mál þessa
báts sem hlotið hefur nafnið
„Kystfangst“ eru: Lengd alls 60.0
fet, breidd 22.2 fet, djúprista 10.10
fet, lestarrými ca 60 m%, olíu-
Björgunarbúnaður frá Hclly-Hansen A/S.
Ljósm. framleiðandi.
tankar ca. 12 tonn og ferskvatns-
tankar ca. 4,5 tonn. Skrokkurinn
er úr stáli og er að sjálfsögðu
byggður eftir ströngustu kröfum
Det Norske Veritas. Bátur þessi
var afhentur í ágúst 1979 og hefur
verið í reynslu því um eitt ár.
Ástæðan fyrir því að hafin var
smíði þessa báts varaðallega sú að
Sjávarútvegsstofnunin hefur um
all langt skeið gert ýmsar tilraunir
og prófanir sem hafa verið gerðar
um borð í bátum sem hafa verið í
eigu annarra en stofnunarinnar og
því oft verið erfitt um vik að gera
þær breytingar á bátunum sem
hafa verið nauðsynlegar þannig
að hægt væri að framkvæma þær
prófanir sem þótt hafa nauðsyn-
legar. Því var mikilvægt að stofn-
unin fengi í hendurnar bát þar
sem hægt væri að koma fyrir því
Teikningin sýnir „Ruggen“.
VÍKINGUR
25