Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Qupperneq 33
Benedikt Alfonsson:
Sjómannamenntun
á háskólastigi
Menntunarmál sjómanna og þá
einkum skipstjómarmanna hafa að
undanförnu verið mjög til um-
ræðu hér í Víkingnum. Til að gefa
lesendum örlitla innsýn í hvað er
að gerast í þessum málum erlendis
birtist hér, í lauslegri þýðingu og
nokkuð styttur, fyrirlestur er Svein
Kaasa rektor Stýrimannaskólans í
Tönsberg flutti 19. jan. s.l. á fundi í
Tönsbergs Sjömandsforening, fél-
ag áhugamanna unr sjómensku og
sjávarútveg. í Noregi eru mörg slík
félög. Það fyrsta þeirra var stofnað
í Drammen árið 1842. Fyrirlestur-
inn var birtur í blaði landssamtaka
þessara félaga, Sjömannsforen-
ingenes melemsblad, 1—2 tölu-
blaði, 32 árgangi 1980.
Vitanlega stenst íslenski kaup-
skipaflotinn engan samanburð við
þann norska hvað stærð snertir, en
okkur ber þó skylda til að reyna að
halda í horfinu og dragast ekki
nrikið aftur úr í tæknibúnaði. Skip
búin háþróuðum tæknibúnaði
hafa í för með sér auknar kröfur
um tæknimenntun skipstjórnar-
manna.
í stærð og búnaði fiskiskipa
stöndum við Norðmönnum jafn-
fætis, og jafnvel skrefi framar í
menntun fiskimanna okkar.
Nú hafa verið stigin í Noregi
fyrstu skrefin í að breyta menntun
sjómanna og færa þau á háskóla-
stig. Ef ekkert verður aðhafst hér,
er ekki langt að bíða, þar til sjó-
mannamenntun í Noregi verður á
öllum sviðunr meiri og betri en hér
á íslandi.
9 sjómannaháskólar í Noregi.
Gefum Svein Kaasa orðið:
„Haustið 1979 hófu fyrstu nem-
endurnir nám í Sjómannaháskól-
anum (Maritie höyskole). Fyrir
stýrimenn tekur námið 2 ár og
líkur með prófi er veitir réttindi til
1. stýrimannsstöðu. í skólanum
eru einnig brautir fyrir vélstjóra,
raf- og stýritækni. Nýir nemendur
verða teknir inn á hverju hausti.
2. stýrimönnum verður gef-
inn kostur á að sækja nám í há-
skólann, æskji þeir að auka
menntun sína til að ná háskóla-
stiginu. Þetta mundi verða eins árs
nám. Að auki verða svo teknir inn
stúdentar með tæknimenntun.
Skipstjóranám hefst í sjó-
mannaháskólanum haustið 1981
og mun taka 1 ár.
Því miður hafa stjórnmála-
mennirnir ákveðið að í Noregi
verði 7 sjómannaháskólar og 2
veiðitækniháskólar (fiskeri-
tekniske höyskoler). Veiðitækni-
háskólarnir eiga að veita samsvar-
andi menntun og sjómannahá-
skólarnir, þannig að allt útlit er
fyrir, að við fáum alls 9 sjó-
mannaháskóla. Þetta tel ég óæski-
legt af því að undirstöðumenntun
nemendanna er að mínu áliti of
33
Flutningatækni verður ein af námsgreinunum í norska sjómannaháskólanum. Hér sjáum
við gámaskipið Samoa 23771 tonn (dwt). Eigandi erdanska Austur Asíu félagið (ÖK).
VÍKINGUR