Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Page 34
í brúnni á stórn gámaskipi. Til að öll þau tækni, sem eru í svona brú, nýtist að fullu, þarf
skipstjómarmaðurinn að þekkja lögmálið scm tækið byggir á, möguleika þess og tak-
mörk.
lítil. Það skiptir miklu að okkur
takist að byggja upp sjómannahá-
skólann í Tönsberg fljótt vel.
Við teljum að leggja eigi niður 2
stýrimannsnámið í núverandi
mynd, og höfum þegar lagt það til
við fylkisskólastjórnina. Þetta telj-
um við skipta máli fyrir framtíð
sjómannaháskólans. Vélskólinn
fylgir sömu stefnu.
Menntun skipstjóra verður
óbreytt enn um sinn, en við bíðum
ákvörðunar ráðuneytisins í því
máli.
að nemendur eru ábyrgir fyrir
námsafköstum sínum og sú skylda
hvílir á þeim, að þeir skipuleggi
sjálfir sitt nám. Einstöku verkefni
má leysa einstaklingsbundið en
önnur eru hópverkefni.
Námið miðar að því að auka
hæfni nemendans til gagnrýninn-
ar og kerfisbundinnar hugsunar.
Áhersla er lögð á að gera nem-
endur vel hæfa til að taka við ný-
ungum í framtíðarstarfi sínu.
Til að gefa nemendum nokkurt
valfrelsi í náminu eru valgreinar í
boði á öllum námsönnum.
Mikil vinna er nú lögð í undir-
búning námsframboða í valgrein-
um. En sem beturfer hefurNorges
Rederforbund og Skibsfartens
Arbeidsgiverforening, ásamt
nokkrum útgerðarmönnum boðið
fram krafta sína.
Stein Strandli undervisningsin-
spektör vinnur að námsframboð-
um í „Transportökonomil og tran-
sportteknikk". Útgerðirnar Wilh.
Wilhelmsen og Leif Höegh taka
þátt í því verkefni.
Johnny Eilers fyrrum skipstjóri
og nú aðjunkt undirbýr náms-
framboð í valgreininni „Transport
av flytende gasser“. í þessum
verkefni hefur hann náið samband
við ýmsar stofnanir svo sem t
Arbeidsforskningsinstituttene,
„System for Sikkert Skip“ og
Norges Skipsforskningsinstitutt.
Útgerðarmenn gasskipa taka virk- «
an þátt í þessari vinnu.
Skipstjóranámsárið á að veita
skipstjórum nauðsynlega þekk-
ingu í lögræði, hagfræði, stjóm-
tækni og áætlanagerð. Það er
mikið og krefjandi verkefni að út-
búa námsgögn fyrir svona fjöl-
breytt nám. Það er nauðsynlegt
fyrir kennara skólans að vinna
með öðrum stofnunum og satök-
um. Undirbúningur fyrir þessa
Útgerðarmenn taka virkan þátt í
undirbúningsstarfinu.
En hversvegna gerum við nú
aðrar menntunarkröfur til sjó-
manna en áður?
Helsta ástæðan er að mínum
dómi sú að norsku kaupskipin
verða er fram líða stundir öll mjög
tæknivædd. Það hefur í för með
sér, að auknar kröfur verða gerðar
um að yfirmenn og aðrir skipverj-
ar séu ekki bara duglegir sjómenn
heldur hafi líka til að bera mikla
tækniþekkingu og tæknilega inn-
sýn. Þetta er aðalástæðan fyrir því
að við færum menntun sjómanna
á háskólastig.
úppbygging námsins er þannig
Þetta er svo kallaður LNG carrier þ.e. skip, er flytur fljótandi jarðgas. Þessi farmur er
mjög hættulegur og verður að flylgja mjög ströngum öryggisreglum, ef ekki á illa að fara.
Ein af valgreinum við norska sjómannaháskólann er „Transport av flytende gasser“.
34
VÍKINGUR