Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Page 35
Þama hefureitthvað farið úrskeiðis. Þetta er stefni og skutur tankskipsins Sansincna, en
sprenging varð í skipinu er það lá í San Pedro, Californiu árið 1976. Skipstjórnarmenn
axla mikla ábyrgð og mikil verðmæti eru í húfi, ef eitthvað útaf ber. Það skiptir miklu að
vel sé staðið að menntun þeirra.
námsbraut er þegar kominn vel af
stað.
Áhersla lögð á gott samband við
atvinnuvegina
I háskólakerfinu höfum við
tekið þá afstöðu að hafa gott sam-
band við atvinnuvegina, með það í
huga að menntun sú sem yfirmenn
fá sé eins vel í takt við tímann og
mögulegt er. í þessu samhengi
þarf að gefa eftirmenntuninni sér-
stakan gaum.
VÍKINGUR
Hlutverk sjómannháskólans er
að mennta vélstjóra, stýrimenn og
rafeinda- og stýritækna. Þetta
þýðir að við verðum að hafa á
boðstólum í háskólanum, nám
sem hingað til hefur verið að fá í
tveim skólum, nefnilega vélskóla
Tönsbergs og stýrimannaskóla
Tönsberg. Stjórnun og innri stýr-
ing sjómannaháskólans verður hið
bráðasta að liggja ljós fyrir, svo
hægt sé að taka málin föstum tök-
um. Það er of seinvirkt að vinna
með tveim nemendaráðum, tveim
kennararáðum og tveim skóla-
nefndum. Við þessar aðstæður
verða skólarnir tveir að taka
frumkvæðið af fylkisskólastjórn-
inni.
Að lokum þetta. Við erum nú að
leggja út á nýja braut í háskóla-
námi. Markmiðið er ekki bara að
mennta menn í stöður um borð
heldur að gefa þeim færi á að fá
stöður við hæfi í landi eftir að hafa
siglt sem yfirmenn í nokkur ár.
Hér á ég við stöður hjá útgerðar-
félögum, siglingamálastofnun,
Det norske Veritas, hafnarstjórn-
um og í skólakerfinu.
Það er von mín að hin nýja
skipan í menntun sjómanna muni
verða til þess að auka sókn í störf á
kaupskipaflotanum.
Þannig fórust Svein Kaasa orð.
Athyglisvert er hve útgerðarmenn
taka mikinn þátt í undirbún-
ingi,enda eiga þeir hvað mest í
húfi að vel takist til. Ljóst er að
minnkandi aðsókn er í störf um
borð í skipunum og vonir um
breytingu til hins betra eru
bundnar nýja kerfinu.
* tinni mt
Tommi: — Það sagði maður
við mig, að ég væri mjög líkur þér.
Jenni: — Og hvað sagðir þú?
Tommi: Ekki neitt. Hann var
miklu stærri og sterkari en ég.
★
— Hæ, hvernig gekk þér með
þessa, sem þú húkkaðir í gær-
kvöldi? spurði Gunsi Jón kunn-
ingja sinn.
— Það gekk alveg prýðlega,
sagði hinn hrifinn. — Hún bauð
mér upp í íbúð sína til að hitta
systur sínar. Og hvað þessi stúlka
var kurteis! Hún kallaði mömmu
sína aldrei annað en maddömuna!
35