Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Blaðsíða 47
CASII - endurbætt árekstrar-
aðvörunarkerfi £rá Sperry
Á sýningunni Europort ’79 í
Amsterdam sýndi Sperry Marine
Systems (SMS) endurbætta gerð
af árekstrar-Aðvörunarkerfinu
CAS (CAS, Colistion Avoidance
System). CAS kom fram í fyrsta
sinn 1972. Þetta fyrsta kerfi sinnar
tegundar í heiminum bar nafnið
CAS 101.
CAS 101 er í varðskipunum
Ægi og Tý.
Þessi endurbætta gerð nefnist
CAS II og er eins og CAS 101
radarsjóntæki ásamt innbyggðri
tölvu. CAS tækin eru alltaf tengd
radarsjóntækjunum um borð, eru
sem sagt aukaradarsjóntæki
(slave). Sé tölvunni gefin fyrir-
mæli um að taka endurvarp (echo)
til vinnslu, sést eftir örskamma
Spcrry C'AS II. Ekki þörf á ncinu (il að skýla skjánuni fvrir dagsbirtunni, jafnvcl í glaða
skólskini.
Á skjánum sjáum
við 5 endurvörp. Árekstrarhætta er við 4
þeirra en eitt þcirra siglir samhliða eigin
skipi og engin árekstrarhætta er við það.
Ekkert PAD-svæði kemur því fram á
skjánunt.
stund lína af tiltekinni lengd
(vektor) er tengist viðkomandi
endurvarpi. Línan sýnir stefnu
skipsins, er endurvarpið táknar, en
lengd hennar er hraði þess. Tölvan
getur tekið til vinnslu öll endur-
vörp sem eru minna en 36 sjóm.
frá eigin skipi, þó ekki fleiri en 20 í
einu.
Ef árekstrarhættu er við einhver
af þeim endurvörpum sem tölvan
hefur í vinnslu, sést á rakarskján-
um sexhyrnt svæði á þeim enda
vektors endurvarpsins sem fjær er
endurvarpinu. Á CAS 101 er
svæði þetta hringlaga. Þetta er
einskonar áhættusvæði (Predicted
Area of Danger, skammstafað
PAD). Skipstjómarmaður getur
VÍKINGUR
47