Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Síða 55
Verslun við
skipshlið
Allir sem stunda flutninga til
Bandaríkjanna þekkja hana Eyju,
hvort sem þeir starfa við flug eða
farmennsku. Þegar Selfoss fór að
nálgast Bandaríkjastrendur, kom-
inn inn á breiðan og grunnan fló-
ann út fyrir millafylkinu Maine,
heyrði ég menn tala um hvað nú
væri best að fá hjá henni Eyju.
hvað Eyja væri nú með, hvort hún
gæti nú reddað þessu, eða hinu.
Og það stóð ekki á því frekar en
fyrri daginn að þegar við vorum
komnir að bryggju í Bayonne í
New Jersey fylki, birtist Eyja, sem
heitir reyndar fullu nafni Sigríður
Þorvaldsdóttir (Jónssonar, sem
lengi var vélstjóri í Héðni) og
maður hennar Frank Henderson á
stóra bílnum þeirra, færandi
varninginn. . . Það voru faðmlög
og kossar enda hafa þau hjónin
þekkt marga um borð í áraraðir,
og gert mörgum farmanninum líf-
ið léttara með því að koma með
úrval af vörum og tækjum að
skipshlið, sem er vel þegin þjón-
usta þegar langt er í búðir og tím-
inn naumur eins og verða vill.
Á þessum mánudagsmorgni
seint í ágúst í birgðastöð flotans í
Bayonne var heitt og rakt og ef
maður ætlaði að þurrka sér með
klút í framan var klúturinn rakur
sjálfur, og þess vegna varég feginn
þegar þau hjónin buðu mér heim
til sín og Frank setti loftkælinguna
í gang í breiðvagni þeirra hjóna og
við héldum í átt að Ferrezano
brúnnisemspannartíguleg sundið
milli Staten Island og Brooklyn,
en þau búa rétt hjá Kennedyflug-
vellinum.
Ég hafði löngum vitað að margt
gæti gerst í sundlaugunum heima.
Ég hafði sem strákur séð Ásgeir
Ásgeirsson fyrrverandi forseta
stinga sér til sunds í gömlu laug-
unum og gott ef ég sá ekki ein-
hvertíma konur afklæða sig þar
bak við bárujárn, og því kom mér
ekki á óvart þegar Eyja sagði mér
að hún hefði kynnst Érank í gömlu
sundlaugunum hér endur fyrir
löngu. Sá buslugangur hafði það í
för með sér að þau fluttu til
Bandaríkjanna og hófu 1951 að
frumkvæði Franks allsherjar
reddingar fyrir landann, sem
staðið hafa látlaust fram á þennan
dag. Fyrst í stað hafði Henderson
kompaníið aðalbækistöðvar syðst
á Manhattaneyju, þar sem nú er
sjóminjasafn, en síðar fluttu þau
skrifstofuna heim til sín og versl-
unina í breiðvagninn, enda ólíkt
þægilegra þegar kúnninn kemur
að landi í Glouster, Everett, Bay-
onne, Cambridge eða lendir á
Kennedyvelli.
Eyja sagði mér að viðskipti við
Islendinga væru öll önnur nú er
þegar þau hjónin hófu starfsemi
sína fyrir hartnær þrjátíu árum. Þá
var vöruúrval lítið á íslandi og þau
útveguðu fólki strauborð og kjóla
og varahluti í hin og þessi tæki, en
nú upp á síðkastið gera skipverjar
t.d. meira af því að kaupa hin og
þessi rafmagnstæki og tölvugrín
allskonar, sem vinsælt er orðið hjá
Bandaríkjamönnum og því til-
tölulega ódýrt. Þau Frank hafa
einnig haft mikil viðskipti við
Flugleiðir, bæði við starfsfólkið og
fyrirtækið sjálft í sambandi við
máltíðir farþega um borð.
Heimurinn er lítill, eins og sést
af því, að Frank er skyldur
Ebeneser Henderson, skotanum
VÍKINGUR
55