Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Page 61
Pési var að ganga inn um hliðið að
kappreiðavellinum, þegar einn af
þátttakendunum klappaði á öxl-
ina á honum. „Veðjaðu öllu, sem
þú átt á mig, sagði hryssan. — Ég
er öldungis viss með að vinna.“
— Þetta er í fyrsta sinn sem ég
heyri hest tala, sagði Pési.
— Ég segi sama, sagði hundur-
inn hans, sem var með honum.
★
Sjórinn var svo kaldur, þegar ég
datt í hann, að þegar ég loks komst
uppúr, var einhver að tala um fal-
lega, bláa litinn á fötunum mín-
um.
— Föðurbróðir minn reyndi að
búa til alveg nýja tegund af bíl.
Hann tók hjól undan Kjálilják,
vatnskassa af Ford, hjólbarða af
Plýmouth — ...
— Hvað fékk hann svo út úr
þessu öllu saman?
— Tvö ár á Hrauninu.
★
Frændi ntinn kunni sig ekki þegar
hann kom til Washington. Hann
elti lengi kvenmann í síðum,
svörtum kjól... og komst svo á
endanum að því, að þetta var
karlmaður hæstaréttardómari.
Maður kom inn til sálfræðingins
síns í afar æstu skapi.
— Það er út af draum, sem mig
dreymdi, stundi hann upp. — Mig
dreymdi að ég væri innan um þrjú
hundruð dansmeyjar, allar hver
annari fallegri, hvar sem á þær var
litið, ljóshærðar, dökkhærðar,
rauðhærðar. Það var alveg skelfi-
legt.
— Af hverju skelfilegt?
— Ég var kvenmaður líka.
★
Föðurbróðir minn var handtekinn
í stórverslun. Hann gekk í gegnum
alla verslunina og kreisti dúkku og
hún sagði „mamrna". Svo kleip
hann aðra dúkku og hún kallaði
„lögregla“.
★
Holywood leikstjarna: — Maður
getur ekki verið þekktur fyrir að
láta sjá sig tvisvar með sama eig-
inmanninum.
★
Prestafélag Vestfjarða hélt fund á
ísafirði. í lokin létu þeir taka af sér
hópmynd. Ljósmyndarinn var
danskur og fremur slakur í ís-
lensku sem flestir danir. Þegar
hann var að raða þeim upp segir
hann við einn gamlingja: „Yður
stendur ekki rétt vel, séra Magnús.
„Ó, já, lítið var en lokið er, en
það mætti kannski athuga það
frekar hjá ungu prestunum.“
VÍKINGUR
61