Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1980, Síða 63
„Eilííöarvélin”?
Brennisteinsknúid skip
Skipamíði er að verða þjóðar-
iðnaður í Póllandi. Þareru smíðuð
flóknari og flóknari skip og hafa
Pólverjar nýlega orðið leiðandi í
smíði efnaflutningaskipa (Chemi-
cal tankera). Tankar slíkra skipa
eru klæddir sýruviðnámsmiklu
stáli, til að gera þá hentuga fyrir
flutninga á mjög tærandi sýrum.
Pólland er þekkt sem leiðandi
land í byggingu tækja fyrir fram-
leiðslu brennisteinssýru og við
sniíði á brennisteinssýrustöðvum,
og landið er einnig stór framleið-
andi brennisteins. en í þessum
bransa eru mörg „en“. Og þá helst
að verð á hráum brennistein hefur
fallið niður í þriðjung verðs til
seinni ára miðað við áður. Með
tilliti til aukins eldsneytiskostnað-
ar og þar með hærri reksturs-
kostnaðar skipa er brennisteinsút-
flutningur að verða sífellt minna
ágóðavænlegur.
Framleiðsla í brennisteinssýru
úr brennisteini í Póllandi gefur af
sér mjög hreinsaða framleiðslu en
framleiðslan er skaðleg náttúru-
legu umhverfi í landi, og flutning-
ar sýrunnar eru kostnaðarsamur.
Umræður um þessar staðreynd-
ir leiddu til þeirrar hugmyndar að
smíða fljótandi brennisteinssýru-
stöð, þ.e. tankskip sem myndi
breyta hráum brennisteinsfarmi í
brennisteinssýru og nota varma
frá efnaferlinum í að knýja skipið.
Varmi losnar ekki aðeins við
bruna brennisteins og að brenni-
steinstvísýringur myndast, því
varmi myndast á öllum fram-
leiðslustigum brennisteinssýr-
unnar og þennan varma verður að
leiða burt úr hvarfefnunum. Enn
meiri varmi losnar úr sýrufram-
leiðslukerfinu þegar brennistein-
steinstvísýringur er snertioxaður
(þ.e.a.s. hann verður fyrir yfir-
borðsoxun) og breytist í brenni-
steinsþrísýring og þegar þrísýring-
urinn er látinn bindast vatni til að
mynda brennisteinssýru, einnig
þegar sýran sem er mjög heit, er
kæld.
Varmagildi brennisteins er 4570
kcal/kg og af þessum varma má
ná 3000—/200 kcal/kg í þremur
stigum framleiðsluferilsins (til
samanburðar má geta þess að
varmagildi kola er um 7000 kcal/
kg-
Gufutúrbína mun knýja slíkt
skip. Orkugjafinn fyrir katlana
verður brennisteinstvísýringur
brenndur í eldholum næst þeim.
Auka varmi frá öllum stigum
framleiðslunnar mun verða not-
aður til að knýja hjálparvélar og
tæki í skipinu, til upphitunar á
brennisteini til að halda honum í
vökvaformi og til eimingar á sjó.
Þetta eimaða vatn verður notað til
VÍKINGUR
63