Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 9
Einstök uppfínning brædra í Eyjafiröi:
Sjálfvirk færavinda
— þarf bara aö gera að fiskinum, vindan sér um hitt, segja sjómenn
Bræðumir Davíð t.h. og Níls Gíslasynir við vinduna sem komið var fyrir í bát frá
Bátasmiðju Guðmundar, á Iðnsýningunni.
Ekki fór mikið fyrir fyrirtæk-
inu DNG h/f á sýningunni, þeir
voru með aðstöðu um borð í bát
frá Bátasmiðju Guðmundar h/f
frá Hafnarfirði. Hins vegar er
sjálfvirka færavindan sem DNG
h/f sýndi, einstök í sinni röð og
vakti mikla athygli þeirra sem
hana skoðuðu.
Bræðurnir Davíð og Níls Gísla-
synir, eigendur fyrirtækisins, voru
staddir um borð og voru fúsir til að
kynna fyrir lesendum Víkings,
kosti sjálfvirku færavindunnar
sem þeir hafa hafið framleiðslu á.
Þeir bræður sögðust hafa gert til-
raunir í þessa átt í sex ár og síð-
astliðin tvö ár hafi vindan verið að
taka á sig þá mynd sem hún er í
nú. Fyrsta vindan var prófuð við
veiðar í fyrra, en nú eru sjö vindur
í notkun á sjónum. Einn þeirra
sem stundað hefur sjóinn með
vindu frá DNG er Marinó Péturs-
son á Bakkafirði og kvað hann
þær í einu orði sagt, dásamlegar.
Það eina sem þarf að gera er að
gera að fiskinum. Vindan sér sjálf
um að draga hann.
Eins og handfæramönnum er
kunnugt, hafa verið fluttar inn
norskar færavindur en á þeim eru
einir þrettán takkar sem læra þarf
á, auk þess sem þær eru mjög
fyrirferðarmiklar. Á vindunni frá
þeim bræðrum eru hins vegar
engir takkar, aðeins eitt handfang
til að setja hana af stað og bremsa
og er það jafnframt „segulpenni“
sem notaður er til að velja still-
ingar. Stillingarnar fara þannig
fram, að segulpenninn er borinn
að ákveðnum hvítunt hringjum á
VÍKINGUR
stjórnborði tækisins, síðan er hann
settur aftur á handfangið.
Vindan er algerlega vatnsheld,
rafeindabúnaðurinn er innsteypt-
ur í plastmassa og allir málmhlutir
úr seltuvörðu áli eða ryðfríu stáli.
Allar stillingar eru sjáanlegar í
ljóstölum.
En grípum niður í kynningar-
bækling frá DNG:
1. Enginn gír og engin kúpling,
gimishjólið er sett beint á mótor-
öxullinn. Það er einmitt þessi
mótor sem gerir útslagið á gæðum
og eiginleikum þessa tækis. Hann
er alveg ný hönnun og allar hug-
myndir um hann koma frá þeim
bræðrum Davíð og Níls Gíslason-
um. Hér er um að ræða samtvinn-
aðan rafmótor og rafeindabúnað,
sem hefir eiginleika sem hafa
verið óþekktir hingað til.
1) Þolir að vera fastur í fullu
átaki, svo lengi sem verkast vill
án þess að brenna yfir eða
hitna.
b) Má gjarnan snúast á móti sinni
eigin snúningsátt.
c) Hæggenguroghefirþá mýktog
sveigjanleika í hreyfingum sem
gerir færavinduna að drauma-
tæki. (Gefur eftir á bárunni
þegar verið er að draga upp fisk
í veltingi o.s.frv.)
d) Togkrafturinn á girnið er
stillanlegur í 10 þrepum. Þarna
er stilltur inn hraðinn á öllum
hreyfingum (röskleikinn) og
mýktin á átakinu.
2. Það myndast aldrei slaki á
girninu og því flækist það alls ekki.
Þetta vill gerast á öðrum tegund-
um í útrennsli, þegar veltingur er
mikill. (Sumar tegundir gera út-
rennslið stirðara í veltingi). DNG
vindan er útbúin þannig að
mótorinn grípur inn í slakann í
tæka tíð.
Þetta kemur þannig út að girnið
dregst létt út af hjólinu þótt það sé
veltingur, án nokkurs slaka.
3. 16 stillingaþrep á fisknæm-
leika.
9