Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Síða 10
Vindan er aðeins tuttugu kíló að þyngd og er öll úr úli eða ryðfríu stáli, byggð til að þola
sífelldan saltaustur, bleytu og hristing. Bræðurnir smíðuðu sjálfir álbræðslu- og ál-
steypuvél til notkunar við framleiðsluna.
Þarna stjórnar þú hvað smáum
fiski vindan gegnir. (Mismunandi
tala eftir sökkuþyngd og öldu.) Þú
ræður hvort hún dregur upp strax
og hún verður vör (jafnvel örsmá-
an titt) eða hún safnar fiski áður
en hún dregur upp.
4. Þegarþú hefur tengt vinduna
og hent „slóðanum“ útbyrðis, ýtir
þú á handfang sem tekur brems-
una af.
Sakkan dregur girnið út af hjólinu
til botns, þar stoppar vindan út-
rennslið og dregur upp um 4
metra, slakar út 3 metra keipar 10
sinnum (3 metra keip) og þreifar
þá eftir botni og sagan endurtekur
sig. Þetta gerir hún alltaf ef hún er
stillt til að fiska á meira dýpi en
botninn er. Ef grynnir þá er hún
alltaf tilbúin að hækka sig.
Þegar fiskur bítur á dregur vindan
hann uinsvifalaust upp. Það eina
sem gera þarf er að taka fiskinn af
önglinum.
5. Ef þú sérð fisk á dýptarmæli
sem er ,,upp í sjó“, þá stillir þú
vinduna á það dýpi og hún setur
önglana á það dýpi og keipar þar.
6. Þú sérð alltaf á hvað margra
metra dýpi önglarnir eru.
7. Strax og vindan er komin í
samband er hún í nothæfum mið-
stillingum fyrir flestar aðstæður.
Þú lætur hana umsvifalaust fara
að vinna og fínstillir hana síðan
eftir smekk og þörfum.
Eins og sést á þessum lestri, er
vindan búin fjölmörgum kostum
sem sjómenn hljóta að kunna að
meta. Auk þess er hún sparneytin,
þar sem sparast rafmagn við gír og
kúplingu sem ekki eru á vindunni,
og hún er létt og fyrirferðarlítil.
Fyrirtækið tekur tveggja ára
ábyrgð á vindunum og sögðust
þeir bræður vonast til að hafa
annað að gera í framtíðinni en
gera við þær.
Á sýningunni bárust yfir fjöru-
tíu pantanir á færavindum og mun
því verða nóg að gera í fram-
leiðslunni, fram á vor. Nú vinna
um tíu manns hjá fyrirtækinu en
það framleiðir einnig aflstýri sem
er ný uppfinning þeirra bræðra og
stjórnar því að álagstoppar í raf-
orkunotkun heimila fari ekki upp
fyrir fyrirfram ákveðið hámark.
Það er hentugt á bóndabæi, stýrir
raforkunotkun bæjarins með sem
minnsta orkunotkun fyrir augum.
Þeir bræður hafa einnig hannað
1. Ljósatölur sem sýna dýpt öngla (í metrum).
2. Fisknæmleiki. Stillingarstaður og viðmiðun-
artala.
3-4. Hér er ákveðið á hvaða dýpi keiping á að
vera. Ef stillt er niður fyrir botn, veiðir rúllan
gagnvart honum.
5. Átak og röskleiki mótors. Stillingarstaður og
viðmiðunartala.
6. Handfang til að taka bremsu af og fleira.
7. Segulpenni.
(Á þeirri gerð sem nú er framleidd, er segul-
penninn hluti af handfanginu.)
Þyngd.......................... ca. 20 kg.
Spenna.................. 12 volt eða 24 volt
Minnsta átak í keipi, miðað við 2 kg. sökku
....................................... 65w.
Meðal notkun í keipi miðað við 2 kg. sökku
....................................... 84w.
Mótor stoppaður í fullu átaki ........ 300w.
hleðslustöðvar fyrir rafmagnslyft-
ara, fyrir nokkur fyrirtæki á
Akureyri, og hafa þær sparað um-
talsverðar upphæðir í rekstri lyft-
aranna.
Vonandi tekst þeim bræðrum,
Níls og Davíð, að framleiða sem
mest af vindurn, því tækið virðist
létta starf handfærasjómanna til
mikilla muna. Hingað til hefur
þeim ekki gengið vel að fá fyrir-
greiðslur til að hefja fjöldafram-
leiðslu, en að sögn Davíðs, vonast
þeir til að það standi til bóta. Þeir
gætu hins vegar fengið fyrir-
greiðslu við að koma verksmiðj-
unni á fót í Noregi, bæði frá sveit-
arfélagi sem vantar atvinnufyrir-
tæki og frá sjóðum, m.a. Norræna
iðnþróunarsjóðnum. Slíkt yrði
hrapalegt fyrir íslenskan iðnað og
eins byggðina í Eyjafirði, því ef
rétt er á málum haldið, gæti fyrir-
tækið veitt fjölda manns atvinnu,
við framleiðslu bæði á innlendan
og erlendan markað.
Þess skal getið, fyrir þá sem
hyggjast panta sér vindu, að best
er að gera það í tíma, því af-
greiðslutíminn núna er sjö
mánuðir.
Fyrirtækið er til húsa að Berg-
hól, í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði,
602 Akureyri, símar %-25842 og
26842 P.O. BOX 157. Verðið á
sjálfvirku færavindunni er nú
49.500 krónur.
10
VIKINGUR