Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 11
Börkur hf:
Ný tegund húseininga
og frystiklefaeininga
Séð yfir salinn, stóra pressan sem olli byltingu hjá Berki, er fyrir miðri mynd. Járnplöt-
urnar eru límdar á mót, síðan rennt inn í pressuna þar sem úrcþani er sprautað inn í og þá
er húseiningin tilbúin og henni staflað til hliðar með tækinu til hægri.
Barkarhúsið sem sett var upp
í tilefni Iðnsýningarinnar og
notað til að hýsa fjölmarga sýn-
ingaraðila, vakti mikla athygli
sýningargesta. Húsið var 254 m2
en hægt er að koma upp húsum
úr Barkar-húseiningum, af öll-
um stærðum. Slíkur byggingar-
máti hentar mjög vel ýmsum
aðilum í sjávarútvegi og því
heimsóttum við bás Barkar hf.
Runólfur Halldórsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, varð
fyrir svörum.
— Fyrirtækið Börkur hf. var
stofnað 1964 og hóf framleiðslu á
einangrun fyrir hitaveiturör. Við
rákumst á upplýsingar um þessa
einangrun í erlendu tímariti og
sáum strax að hún mynd henta vel
hér á landi. Þessi framleiðsa varð
eitt aðalverkefni okkar, og tel á að
um 80% af hitaveiturörum í ís-
lensk hús séu frá okkur. Þessi
markaður er því að verða mettur.
Fljótlega hófum við líka fram-
leiðslu á einangrunarefnum í
fiskilestar og var það efni notað af
öllum íslenskum skipasmíða-
stöðvum.
Kveikjan að framleiðslu okkar á
húseiningum er sú, að við byggð-
um okkur 700 fermetra verk-
smiðjuhús úr asbest-plötum á
stálgrind. Það efni reyndist ekki
þola íslenska veðráttu svo við leit-
uðum að öðru efni og byggðum
2000 fermetra hús, 1976, úr sams
konar einingum og við nú fram-
leiðum. Þessar einingar eru sam-
lokuflekar með polyúreþanein-
VÍKINGUR
angrun og hlífðarplötum úr 0.63
mm heitgalvaniseruðu stáli,
grunnmáluðuni, húðuðum með
níðsterkri plasthúð sem nefnist
plastisol og endist í áratugi.
Fyrir einu og hálfu ári keyptum
við fullkomnar vélar og hófum
framleiðslu á þessum vegg- og
þakeiningum sem við framleiðum
í þrem mismunandi þykktum og
lengdum að vali kaupenda, allt að
tólf metrum. Plasthúðunin fer
fram í fullkomnustu vélum er-
lendis og varnar húðin ryðmynd-
un auk þess sem hún er sérlega
þægileg í þrifum. Þess vegna henta
einingarnar vel þar sem mikils
hreinlætis er krafist, eins og í mat-
vælaiðnaði.
Við framleiðum einnig frysti- og
kæliklefa úr stöðluðum einingum
sem eru níðsterkar og auðveldar í
uppsetningu. Þær eru galvaniser-
aðar og húðaðar með sams konar
plasthúð og húseiningarnar og fá-
Útbúum lyfjakistur fyrir skip
og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfja-
skrín fyrir vinnustaði, bif-
reiðar og heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Hafnarstræti 5. Sími 29300