Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 12
anlegar í fjölmörgum stærðum svo
hægt er að raða þeim saman og
búa til frystiklefa að nánast hvaða
stærð sem er, sagði Runólfur.
Fyrst þú ert frá Sjómannablað-
inu, hélt hann áfram, get ég bent
þér á nýja framleiðsluvöru frá
okkur sem gæti hentað mönnum
sem eiga fiskverkunarhús og slíkt.
Það eru hita- og frostþolin plaströr
sem henta vel í snjóbræðslukerfi
undir bílaplön, heimkeyrslur og
fleira. Þetta eru einu rörin sem
framleidd eru hér á landi sem þola
bæði forst og funa ef svo má segja.
Þau þola 90° hita.
Börkur hf. er til húsa að Hjalla-
hrauni 2 í Hafnarfirði, sími 53755.
Guftsteinn Hróbjartsson, starfsmaður Barkar hf., límir plöturnar á mótin áður en þeim er
rennt inn í pressuna.
Bátasmiöja Guðmundar, Hafnarfirði:
Sómafley til kvöld- og helgarveiða
Bátasniiðja Guðmundar í Hafn-
arfirði, sýndi nýja tegund af plast-
báti, sem nefnist Sómi 700 á úti-
svæðinu. Hann er stærri en fyrri
gerð sem framleidd er í smiðjunni,
4.90 rúmlestir, 7,09 metra langur,
2.52 m að breidd og 1.44 að dýpt. í
þessari nýju gerð, breikkar vinnu-
rýmið, húsrýmið stækkar en gang-
hraðinn og snerpan er sú sama.
Bátasmiðja Guðmundar er ungt
fyrirtæki. stofnað 1980. Fyrsta
verkefni þess var smíði fimm
tonna fiskibáts úr plasti. Þrír slíkir
bátar hafa verið smíðaðir og
reynst vel. Fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í viðgerðum á plastbátum
og hefur við það þó nokkur verk-
efni, en 1981 hófst framleiðsla á
litlum plastbáti sem nefnist Sómi
600. Eigandi smiðjunnar hannaði
bátinn og miðaði við erlendar
gerðir, en breytti þeim miðað við
íslenskar aðstæður. Er munurinn
sá að vinnurými aftan við stýrishús
er mun meira en á venjulegum
sportbátum, svo hægt er að stunda
veiðar af meiri alvöru á þeim ís-
lenska. Báturinn hefur reynst vel
og verið vinsæll til kvöld- og helg-
arferða sem og til skemmtisigl-
inga. Sómi 600 e 3.20 rúmlestir,
6.05 m langur, 2.32 m breiður og
1.20 að dýpt. Þegar hafa verið
smíðaðir tuttugu slíkir bátar, en
átta af gerðinni Sómi 700.
Hægt er að fá báta frá Báta-
smiðju Guðmundar á öllurn
framleiðslustigum og velja inn-
réttingar eða smíða þær sjálfur.
Kvað Guðmundur eigandi smiðj-
unnar, nokkuð algengt að menn
gerðu slíkt.
Verð tilbúins báts, án vélar og
tækja, af gerðinni Sómi 700, er nú
286 þúsund krónur en minni
gerðarinnar 220 þúsund.
Bátasmiðja Guðmundar er til
húsa að Helluhrauni 6, í Hafnar-
firði, sími 50818.
Nýja }>erðin frá Bátasmiðju Guðmundar, Sómi 700. Á myndinni sést hve rúmgott vinnu-
svæðið er aftan við stýrishúsið.
12
VÍKINGUR