Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Qupperneq 22
Mvndin sýnir notknn j>ánia eða kerja á hinum ýmsu stigum, frá |iví að þeir koma úr verksmiðjunni úr framleiðslu og hringrás þeirra úr
gámageymslu um liorð í skip eða í fiskverkun og (il haka.
Gámur þessi er bæði hannaður
fyrir lyftara og unnt er að hífa
hann upp.
Framleiðsla þessara gáma hófst
á sl. ári á vegum fyrirtækisins
Norm-x h.f. og hafa verið seldir
rúmlega 200 gámar sem notaðir
eru í m/s Gunnjón, nýju skipi
Gauksstaða h.f., Garði.
Þessir gámar hafa nú verið í
notkun í rúmt ár á þorsk- og síld-
veiðum. Einvörðungu hefur verið
ísað í þessa gáma.
Fiskgæðin hafa verið í samræmi
við björtustu vonir, öll meðhöndl-
un í landi hefur verið, með lyftur-
um og hefur það verið til verulegs
hagræðis, en um borð í Gunnjóni
hefur hinsvegar þurft að flytja
gámana til tóma með handlyftur-
um og handafli.
Ljóst var að unnt væri að ná
mun betri árangri í vinnuhagræð-
ingu um borð í fiskiskipum ef
mögulegt reyndist að hanna sér-
stakan búnað í lestum þannig að
22
mannshöndin þyrfti sem minnst
að koma við gámana, bæði við
fyllingu þeirra, flutning á sinn stað
í lestinni og losun lestarinnar við
löndun.
Undanfarna mánuði hefurfarið
fram könnun á slíkum kerfum í
samvinnu Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, Iðntæknistofnunar
Islands og aðstandenda Norma hf.
og Norm-x h.f.
Nú er svo komið að hugmyndir
liggja fyrir um ákveðið gáma-
flutningskerfi er þátttakendum í
umræddri könnun þykir rétt að
hannað sé til fullnustu og reynt um
borð í fiskiskipi.
Lýsing á gámaflutningakerfi
Gert er ráð fyrir að nota Norm-
x 750 plastgáma. Gámar þessir eru
með tvöföldu plastbyrði með
frauðeinangrun á milli. Þeir þola
mjög vel högg og hnjask og eru
fyllilega sambærilegir að styrk-
leika við málmgláma. Þeir þola
einnig mjög vel að saltað sé í þá og
hefur ekki orðið vart neinna áhrifa
af salti eða öðru. Með því að
gámarnir eru einangraðir er ekki
sama þörf á sérstakri lestarein-
angrun, sem verður að teljast hag-
kvæmt.
Eins og flutningskerfi þetta er
fyrirhugað er unnið að flokkun og
ísun fisksins strax að aðgerð lok-
inni. Það verður að teljast mikill
kostur að flokka fiskinn strax
ofaní gámana og ætti þetta tví-
mælalaust að stuðla að hærra
fiskverði jafnt á innlendum sem á
erlendum markaði. Einnig væri
e.t.v. hægt að nýta fiskimjölshrá-
efni sem nú er hent. Gámaflutn-
ingskerfið verði í fyrsta áfanga
eins og áður sagði miðað við í m/s
Júpíter, og að notaðir verði
Norm-x 750 gámar, þótt stefnt
verði einnig að því að nota það
fyrir fiskkassa á flutningspöllum.
Sé tekið mið af m/s Júpíter
getur aðallest skipsins tekið um
VÍKINGUR