Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 30
„Kokkurinn við kabyssuna stóð ...“ stendur einhvers
staðar og nú ætlum við að taka upp nýjan þátt í Víkingnum
þar sem fjallað verður um ýmislegt sem hægt er að sýsla við
kabyssuna. Mættu gamalreyndir kokkar sem lengi hafa staðið
í brasinu, gjaman senda okkur sniðugar uppskriftir, bæði
hversdagslegar og hátíðlegar. Meiningin er að fjalla helst um
aðferðir við að matbúa fisk, því smátt og smátt er landinn
farinn að borða hann á fjölbreyttari máta en einungis með
kartöflum og floti, og er það vel.
Nú er síldin farin að veiðast og
segja sumir að í hönd fari nýtt
síldarævintýr, þar sem ýmislegt
bendir til að hún fari að láta sjá sig
í meira mæli en síðustu ár. Þeir
sem kunna að meta síld finnst hún
sælgæti og birtum við hér nokkrar
uppskriftir sem við fengum frá
Síldarréttum hf. á Smiðjuvegi 36, í
Kópavogi.
A myndinni má sjá bás Síldar-
rétta á Iðnsýningunni, þar sem
kynnt var ný aðferð við fram-
reiðslu síldar. Var rétturinn mjög
vinsæll hjá sýningargestum og vel
þegin tilbreyting frá sjoppufæð-
inu. Sérstök brauð voru notuð í
réttinn, sem líkjast pyslubrauðum
í útliti, en eru úr grófu korni og
sykurlaus. Brauðin voru bökuð í
Sandholts bakaríi, á Laugavegi og
fást þar e.t.v. í brauðið er sett
síldarflak, ýmist marinerað eða
kryddsíld, eins og pylsa er sett í
pylsubrauð og sósa yfir. í brauðið
er líka settur laukur og fersk
gúrka. Sósan var búin til sérstak-
lega fyrir þetta tækifæri, úr
Þær eru ekki að afgreiða pylsur, eins og sýnist fljótt á litið, heldur að setja síld í brauð,
með lauk og sósum. F.v. Þórunn Gestsdóttir, einn af eigendum Síldarrétta og hús-
mæðrakennararnir Gunnþórunn og Bergljót Andrésdóttir. Kannske fáum við slíkt lostæti
í sjoppumar, bráðlega.
mjólkurafurðum, majoneslaus.
Að sögn Egils Thorarensen, hjá
Síldarréttum, er hægt að nota
hvaða sósu sem er, t.d. tilbúnar
kaloríusnauðar sósur með karrí
eða tómatbragði eða svokallaðar
fiskisósur. Agli fannst ekki ólíklegt
að bráðlega yrði settur upp síldar-
vagn niður í bæ, líkt og pylsuvagn,
en slíkt tíðkast t.d. í Hollandi.
Salat í partýið
eða veisluna
Þetta salat er blandað fyrir sér-
stök tækifæri og miðað við að það
borðist fljótlega, enda varla
nokkur hætta á öðru .. .
Karrýsíld
3 flök marineruð síld
100 g olíusósa
Vi bolli sýrður rjómi
1 tsk sinnep
V2 laukur, saxaður
1 epli, saxað
1 tsk karrý
kurlaður ananas op ananassafi
Brytjið síldina og blandið öllu
varlega saman. Látið þetta bíða á
köldum stað í nokkra klukkutíma
áður en það er borið fram.
30
VÍKINGUR