Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 36
50 ára
• •
saga Oldunnar
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Aldan hefur frá upphafi, 1893, tek-
ist á við verkefni, sem einkum varða
skipstjórnarmenn. Má þar nefna
siglingalöggjöf og málefni Reykja-
víkurhafnar, en um þau hafði Aldan
mikil áhrif. Margt var þó rætt á
fundum félagsins, sem ekki var
beint í verkahring skipstjórnar-
manna.
í lögum félagsins segir að í stjórn
skuli vera íslenskir menn og tala,
skilja og skrifa íslensku stórlýta-
laust. Aldan er á þessu sviði í far-
arbroddi og var oft vikið aó mál-
hreinsun á fundum félagsins og
flutterindi um móóurmálið.
Árið 1912 efndi Aldan til sam-
skota, til að styrkja fátækan, ís-
lenskan listamann til náms í Kaup-
mannahöfn. Söfnuðust á þrem
mánuðum 209 krónur, sem voru
sendar listamanninum. Var þetta
álitleg fúlga á þeim tímum, þegar
þess er gætt að árgjald félags-
manns í Öldunni var 3 krónur. Við-
takandinn sendi Öldunni þakkar-
bréf og árnaði félaginu heilla. Und-
irskriftin var:
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Framanritað eru dæmi um mál,
sem Aldan fjallaði um.
Félagiö var einn helsti frumkvöð-
ull að stofnun Slysavarnafélags ís-
lands, og forsetar þess voru um
langt skeiö úr Öldunni. Svipað má
segja um Fiskifélag íslands á fyrstu
árum þess. Segja má að þessi mál
væru að nokkru á starfsvettvangi
Öldunnar, en eins og áóur segir bar
þar margt á góma, þótt ekki verði
tíundað hér.
Merkileg bók um viöburöaríka tíma
Bókin fæst á skrifstofu Skipstjóra- og stýrimannafélagsins
Öldunnar, Borgartúni 18 — sími 29933.
Þeir sem kaupa bókina fyrir 15. nóvember, fá hana með
sérstökum afmælisafslætti á kr. 600.
Bókina er hægt að fá senda í póstkröfu.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan
36
VÍKINGUR