Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Síða 47
loðnukreistara. Eftir að hætt var
að veiða loðnu varð að snúa sér að
öðrum verkefnum og nú fram-
leiðir fyrirtæki m.a. sjálfvirkar
skreiðarpressur, lausfrystitæki,
hausara fyrir saltfisk og skreið,
löndunarkrana, laxa- og rækju-
hrognavinnsluvélar, kassaþvotta-
vélar, auk ýmissa færibanda og
sigtibanda. Fyrirtækið flytur inn
ýntsar gerðir vinnsluvéla fyrir
frystihús, saltfisk- og skreiðar-
verkun og veitir einnig ráðgefandi
verkfræðiþjónustu við hönnun
fiskvinnsluhúsa og skipulagningu
vinnslurása.
Traust h/f er að Knarrarvogi 4 í
Reykjavík, sími 83655.
Mötunarbúnaður fyrir saltdrcifikassa. í sílóið kemst eitt tonn af salti.
Þorvaldur reri á vetrum á Akra-
nesi og þótti hinn nýtasti liðs-
maður. Vertíð eina voru illar
gæftir en nógur fiskur. Á föstu-
daginn langa var sjóveður gott og
vildi Þorvaldur róa þegar að
morgni, en formaður vildi lesa
fyrst og réð hann. í lestrarlok kom
Þorvaldur út og sá, að rnenn voru
almennt rónir, hljóp hann þá inn
og kallaði með ofboði: — Hafðu
bölvaða skömm fyrir lesturinn.
Þeir eru allir komnir til andskot-
ans. Ég held það sé best að við
djöflumst á eftir.
Kona nokkur fór eitt sinn unt borð
í kaupskip og hafði með sér dóttur
sína, barnunga. Fann hún eins-
lega kapteininn og gerði við hann
smákaup, og samdi þeirn um allt,
en barninu gast þó ekki alls kostar
vel að viðskiptum þeirra og tók að
æpa og hrína. Heyrðu þá menn á
þiljum upp, að hún þaggaði niður
í barninu og mælti: „Þegi þú
stelpa, maðurinn er að gera mér
gott.“
VÍKINGUR
Það þótti fyrrum hin mesta óhæfa
að blóta á sjó, en um það gat Þor-
valdur ekki stillt sig. Félögunr
hans þótti þetta miður og buðu
honum fé til að varast blót, þó
ekki væri nema einn dag, og taldi
Þorvaldur það hægðarleik. Róið
var, nógur fiskur og drógu allir
vel, nema Þorvaldur, sem þó var
ntanna fisknastur. Gekk svo lengi,
að hann varð ekki var. Þetta þoldi
hann ekki, hankaði upp, beitti
öngul sinn, fleygði út færinu og
sagði: — Ég er ekki að þessurn
andskota lengur. Eftir það dró
hann ekki síður en aðrir.
47
u
•F U N D 1 N N
5 N Æ V 11 ■ I F
G L ± ■ S r o
Lausn á
síðustu
krossgátu