Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 49
Einar Jónsson, fiskifræöingur:
Fiskveidiráöstefiia
á Grænlandi
Dagana 31. maí — 3. júní s.l. var haldin í Sisimint (Holsteins-
borg) á Grænlandi ráðstefna sem hafði það að markmiði að koma á
samvinnu á sviði fiskveiða og fiskvinnslu á milli nyrstu þjóða við
N-Atlantshaf. Samtök grænlenskra útgerðarmanna (AAK) höfðu
frumkvæðið að þessari ráðstefnu sem bar heitið NAFCO —
Norður-Atlantshafsfiskveiðiráðstefnan — og boðuðu til hennar
fulltrúa frá íslandi, Færeyjum og Noregi ásamt heimamönnum.
Þótt samtök útgerðarmanna hafi haft forgöngu um þátttöku, hver í
sínu landi, sóttu ráðstefnuna flest stærstu hagsmunafélög um fisk-
veiðar frá löndunum fjórum. Þannig sóttu fundinn héðan fulltrúar
frá Landssambandi ísienskra útgerðarmanna, Sjómannasambandi
íslands og Farmanna- og fiskimannasambandi íslands. Frá hinum
löndunum komu fulltrúar frá hliðstæðum samtökum auk fiski-
fræðinga frá hverju landi. Alls voru ráðstefnugestir liðlega 40 tals-
ins, auk nokkurra grænlenskra áheyrnarfulltrúa sem sóttu ráð-
stefnuna sem gestir
Upphaf þessara fundahalda má
rekja beint til þeirrar staðreyndar
að Grænlendingar eru að segja sig
úr Efnahagsbandalagi Evrópu og
taka sín mál æ meir í eigin hendur.
Þótt ljóst sé að Grænlendingar sjái
sér hag í því að ganga úr EBE, tapa
þeir væntanlega um leið nokkrum
stundarhagsmunum sem eru
styrkir frá bandalaginu. Vegna
þessa meðal annars vilja þeir snúa
sér til nágrannaþjóðanna með
samvinnu og jafnvel aðstoð á
ýmsum sviðunt fiskveiða og fisk-
vinnslu í huga.
Þann 29. maí s.l. vorum við
mættir sjö saman, út á Keflavík-
urflugvöll, íslensku fulltrúarnir á
ráðstefnunni. í þessum hópi voru
þeir Ágúst Einarsson, Jakob Sig-
urðsson og Kristinn Pálsson frá
LÍÚ, Óskar Vigfússon frá Sjó-
mannasambandinu, Ingólfur
VÍKINGUR
Falsson frá Farmanna- og fiski-
mannasambandinu, Jón Jónsson
og undirritaður frá Hafrann-
sóknastofnun, en ég fór reyndar í
boði LIÚ.
Flugvél frá Grönlandsfly
Þótt Grænland sé næsti ná-
granni okkar í metrum mælt hafði
ekki reynst vandræðalaust að
skipuleggja þessa ferð. SAS flug-
félagið hefur nú lagt af millilend-
ingar hér á landi í áætlunarflugi
sínu til Grænlands. Eina leiðin til
þess að komast til Grænlands með
áætlunarferðum héðan liggur því
yfir Kaupmannahöfn, en slíkar
ferðir eru fokdýrar auk óhjá-
kvæmilegs gistikostnaðar við Eyr-
arsund í tvígang. Þegar farið var
að grennslast eftir um leigu á lítilli
7 manna vél, sem fluttgæti hópinn
til Grænlands, kom eftirfarandi í
ljós. Flugið er svo langt að vart
kom til greina annað en láta vélina
bíða (í 3—4 daga) á meðan á ráð-
stefnunni stóð. En dæmið gekk þó
ekki upp, því til þess að komast
hina löngu leið yfir Grænlands-