Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 50
íslenski hópurinn, f.v. Ágúst Einarsson, Kristján Pálsson, Einar Jónsson, Óskar Vigfússon, Jón Jónsson, dr. Jakob Sigurðsson og
Ingólfur Falsson.
jökul til Syðri-Straumfjarðar
þurfti flugvél af þessari stærð að
taka auka bensínbirgðir þannig að
hún gat aðeins tekið 5 farþega.
Stærri flugvélar hentuðu engan
veginn svo fámennum hóp. Málin
voru athuguð áfram og hjólin fóru
að snúast. Sendinefnd frá borgar-
stjórn Reykjavíkur þurfti að
endurgjalda heimsókn bæjar-
stjórnarfulltrúa frá Nuuk. Ásamt
tveimur færeyskum fulltrúum á
fiskveiðiráðstefnuna slógust borg-
arstjórnarmenn í hópinn. Fengin
var stór leiguflugvél frá Grön-
landsfly og skipulögð heimsókn
heils fótboltaliðs frá Nuuk hingað,
auk bæjarstjórnarfulltrúa frá
Nanortalik sem fylltu vélina af
hálfu vestanmanna. Við vorum að
fara tii Grænlands til þess að ræða
samvinnu og það kom í Ijós, að
vart var hægt að komast til lands-
ins án þess að hafa samvinnu við
50
heimamenn. Þetta hlaut að vera
brýnt verkefni þessi samvinna.
Farkostur okkar til vesturflugs-
ins var undratækið DASH 7, sem
er fjögurra hreyfla kanadísk flug-
vélartegund, er tekur um 50 far-
þega (ef ekki er um mjög langt
flug að ræða) og þarfnast ótrú-
legra stuttra flugbrauta. Græn-
land er fjöllótt land og óslétt með
afbrigðum, þannig að nær hvergi
finnst hentugur staður undir flug-
braut, þó af stystu gerð sé. Ame-
ríkanar hafa byggt 3 herflugvelli í
landinu og eru þeir notaðir sem
farþegaflugvellir af Grænlending-
urn en syðsta völlinn á Stokkanesi
(Narssarsuaq) hefur herveldið
yfirgefið fyrir löngu. Sá hængur er
þó á, að þessir vellir eru eiginlega
langt frá allri byggð, eða þéttbýli,
og liggja á áreyrum innst inni
undir jöklum. Út frá þessum flug-
völlum fer svo innanlandsflugið
frant, að mestu nteð þyrilvængjum
er setjast á steinsteypta palla er
finnast í öllum þéttbýliskjörnum.
Nú hafa landsmenn sjálfir samt
byggt sinn fyrsta flugvöll; 800 m
langa flugbraut sem sprengd hefur
verið í bergið rétt utan við Godt-
háb með ærnum tilkostnaði. Ann-
ar slíkur völlur er í byggingu uppi í
Jakobshavn. Þyrlurnar eru geysi
dýrar í rekstri, en Grönlandsfly
hefur nú eignast tvær af áður-
nefndum DASH vélum og flýgur
þeim á milli Godtháb og áður-
nefndra flugvalla. Þyrilvængjur
munu þó um ófyrirsjáanlega
framtíð verða meginstólpinn í
grænlensku innanlandsflugi.
Lagt af stað
,,Hástélja“ eins og grænlenska
nafn hennar ntun þýða tók sig á
loft af Rosmhvalanesi á fáeinum
handarbreiddum og stefndi í
VÍKINGUR