Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 54
fundinum. Var ákveðið að full-
trúar landanna (2 frá hverju) hitt-
ist nú í haust til þess að ræða
áframhaldið. í ályktun frá fund-
inum sem fylgir þessari grein eru
taldir upp þeir málaflokkar sem
mönnum þóttu vænlegir til þess að
byggja á fyrsta grundvöll sam-
vinnu. Ljóst er að ályktunin er
mjög almennt orðuð, enda á þessu
stigi aðeins hugsuð sem grund-
völlur til frekari úrvinnslu. í
vinnuhópunum voru þó ýmis at-
riði rædd all ítarlega. Að því er
varðar samvinnu milli Grænlands
og íslands þá eru ýmis verkefni
strax í sjónmáli og ef til vill auð-
fundnari heldur en samstarfsverk-
efni milli Grænlendinga og ann-
54
arra þjóða. Þannig var varpað
fram hugmyndum að samvinnu
landanna á sviði hafrannsókna og
landhelgisgæslu til hagsmuna fyrir
báða aðila. Löndunarheimildir
grænlenskra skipa hér á landi voru
ræddar en ljóst er að báðir aðilar
geta hagnast af slíku samstarfi. Af
hálfu Grænlendinga var þannig
látið í veðri vaka að veiðiheimildir
kynnu að verða fáanlegar í skipt-
um eða gegn aðstoð á ýmsum
sviðum. Auk þessa töldu ýmsir út-
gerðarmenn sig hafa mikinn
áhuga á kaupum á ýmis konar
þjónustu við flota sinn á íslandi,
kaupum á veiðarfærum o.fl.
Sem áður sagði var NAFCO-
ráðstefnan fundur hagsmunaaðila.
en ekki þinghald opinberra aðila.
Þarna sköpuðu sjómenn og út-
gerðarmenn sér sjálfir vettvang til
þess að reifa málin. Ljóst er hins
vegar að ef hrinda á mörgum af
þessum hugmyndum eða verkefn-
um í framkvæmd verður að koma
til kasta viðkomandi stjórnvalda.
Ráðstefnan var annars Græn-
lendingum til mikils sóma og full-
trúar grænlenskra útgerðarmanna
stjórnuðu henni af mikilli rögg-
semi. Grænlendingar virtust og
gera sér miklar væntingar af þess-
um fundahöldum sem reyndar
vöktu mikla athygli í landinu.
Þarlendir fréttamenn frá blöðum,
útvarpi og sjónvarpi fylgdust með
ráðstefnunni frá upphafi og sendu
daglega frá sér fréttapistla.
Grænlensk fyrirtæki skoðuð
Þegar hinum formlegu funda-
höldum var lokið gafst tækifæri til
þess að sjá grænlenska fiskiðn í
raun. Farið var í skoðunarferðir
um öll helstu fyrirtæki bæjarins á
þessu sviði. Áður en konrið er að
sjálfri fiskiðninni skal til gamans
drepið á iðjuver nokkurt í bænum
er við skoðuðum. Þar eru ýmist
framleiddar fiskafurðir eða skipt
er yfir í kjötvinnslu (sjávarspen-
dýr, hreindýr o.fl.). Þegar okkur
bar að garði var verið að skera
niður hnúfubak. Þessi hvaltegund
er reyndar alfriðuð í heiminum, en
Grænlendingar fá að veiða nokk-
ur dýr í krafti sérréttinda, sem
kennd eru við frumbyggjaveiðar.
Ekki var nú hvalurinn beinlínis
unninn í fjörunni eins og undan-
þáguleyfin virðast gera ráð fyrir,
heldur var hér nánast um verk-
smiðjuvinnu að ræða, en það er
önnur saga sem við ættum síst að
hafa í flimtingum. Okkur voru
sýndar allar afurðir verksmiðj-
unnar og gat þar að líta kynlegt og
skemmtilegt úrval sem íslendingar
eða aðrir myndu ekki allir leggja
blessun sína yfir, en sinn er siður í
landi hverju. fslenskum æðar-
VÍKINGUR
ERICSON-bílasímar
Viðurkenndir af Landssíma íslands.
Þessi heimsfrægu tæki munu innan
skamms þykja jafn sjálfsögð á ís-
landi sem í öðrum löndum.
Tryggið ykkur bílasíma í tíma.
Georg Ámundason & Co
Suðurlandsbraut 6 símar 35277 og 81180.