Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Page 59
úr.
UtanheirrllJf
Atvinnuleysi norskra sjó-
manna:
3400 farmenn eru nú atvinnu-
lausir. Atvinnuleysið nær til
allra stétta neina rafvirkja.
Olíutekjur
Norðmanna:
Norska ríkið fékk 30 milljarða
N.kr. í skatta og framleiðslu-
gjöld 1982 af olíunni á norska
sökklinum.
I.T.F. ályktun:
l.T.F. leggur til að siglinga-
þjóðir í Vestur-Evrópu greiði
útlendingum á skipum sínum
sama kaup og löndum sínum.
Atvinnuleysi er mikið meðal
sjómanna í Evrópu. vegna
innrásar sjómanna frá þróun-
arlöndunum er vinna fyrir
mjög lágt kaup á Evrópu-
mælikvarða, en er samt mjög
gott samanborið við hið lága
kaup þróunarlandanna.
Norröna, flaggskip Fær-
eyinga:
Norröna, flaggskip Færeyinga
kostar ca. 130 millj. dkr. eftir
umfangsmiklar breytingar.
Það er um 390 millj. ísl.kr.,
eða eitt skuttogaraverð. Norr-
öna er 7500 brúttó tonn byggð
1973 og tekur 1040 farþega og
286 fólksbifreiðar.
Vel gengur
hjá Lauritzen:
19 skip og 6 borriggar skiluðu
865 millj. dkr. í bróttóágóða
1982. Starfsmannafjöldi
skipafélagsins: 865 til sjós og
280 í landi.
Uncle Sam á í seli:
Bandaríkjamenn eiga 446 skip
undir þæginda fánum, 47,2
millj. tonn dw.
Kjölfarið, er orðið langt:
Mærsk Post segir frá því að
Kurt Brændkilde, skipstjóri
hafi á 25 ára starfsaldri sínum
hjá félaginu, lagt að baki
1.633.250 sjómílur eða vega-
lengd samsvarandi 73 ferðum
umhverfis jörðina, mun það
met vera óslegið hjá þeirri út-
gerð, 130 skipum.
Grikkir skilja skipin eftir:
Grísk stjórnvöld eru
áhyggjufull, vegna þess að
þeim grísku skipum fjölgar
stögugt, er áhafnirnar skilja
eftir víðs vegar um heiminn,
og fara sjálfar heim. Eins og
stendur eru yfir 30 skip liggj-
andi víðsvegar um heim, er
þannig er ástatt fyrir. Orsak-
irnar eru greiðsluþrot eig-
enda, og umboðsmanna
þeirra. Grísku sendiráðin hafa
orðið að hjálpa 600 sjómönn-
um (grískum, og erlendum) til
síns heima.
„Star 5hipping“
Star shipping hefur 2 fjöl-
hæfnisskip í smíðum, í Skála í
Færeyjum. Skipin, eru hönn-
uð fyrir: gáma, pallettur,
skutbrú er fyrir ökutæki,
kæli- og frystilest er í þeim.
Hliðarop á síðu. Á efstaþilfari
er pláss fyrir 42 20 feta gáma.
Verð pr skip 122 millj. ísl.kr.
Ganghraði 14— 15 sjómílur.
Burðarafl 1700 tonn dw.
Lyftigeta kranans, er 25 tonn.
1 skip fyrir lausafarma, og
gáma stærð 400 tonn dw. yfir-
tekið í Fredrikshavn, í Dan-
mörku.
„Svo dýr getur saltfiskurinn
orðið“. 428 kr. kílóið.
Fiskur dýr í Brasil. 146
N.kr. kostar 1 kíló af væntan-
lega 1. flokks saltfiski í Rio de
Janero, samkvæmt norskum
heimildum, eða 428 kr. ís-
lenskar kílóið. Meti svo sjó-
maðurinn sinn hlut.
„Vestlandia“
Systurskip Olavur Greger-
son (nú Selfoss). Stærð 75000
rúmfet, kæligeta — 25°C 1525
tonn dw. (brúttó 1072). Lyfti-
geta krana 20 tonn.
2 systurskip munu nú þegar
pöntuð, frá verftinu í Skála í
Færeyjum.
Lokaorð:
Þannig hafa Færeyingar
ýmist tekið við eða fá um 14
— 15 kaupskip á árunum 1982
— 1983. Öll ný, að Smyrli
undanskildum. 7 — 8 ný-
byggingar, eru í pöntun. Auk
þess liggja fyrir beiðnir í fær-
eyskum bönkum, lánabeiðnir
um kaup á ca 10— 12 skipum
notuðum.
Hvað höfumst við íslend-
ingar, að í þessum málum?
Fróðlegt væri, ef einhverjir
sæu sér fært að stofna til um-
ræðu um þau mál.
Með kveðjum,
Sigurbjörn Guðmundsson.
VIKINGUR
59