Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1983, Side 65
]
íir.
Uta,yei,,Kjr
A.P. Meller gerir betur:
97% af tekjum skipadeildar
A.P. M^ller eru utan Dan-
merkur. Ágóði 748 millj. dkr.
þegar allt er greitt og afskrifað
í botn. Netto árangur.
Einstirnungur blívur
stærstur:
Líberia verður áfram með
stærsta kaupskipaflota heims
undir þæginda fána sínum.
144 skip, sem eru í smíðum,
7,3 millj. tonn dw. fara undir
fána Líberíu, eða 23% af því
sem er í smíðum í heiminum.
Siglingatekjur Svía:
Þrátt fyrir að sænski flotinn
hafi gengið saman um helm-
ing, voru siglingatekjurnar
13,1 millj. skr. brúttó sl. ár.
Stúlkur undir hin
hvítu segl:
Skólaskipið Danmark tekur
nú í fyrsta skipti 4 stúlkur um
borð, drengirnir eru 76. Þetta
er gert að kröfu jafnréttisráðs,
er lætur sig engu skipta þótt
yfirmennirnir séu brúnaþung-
ir og áhyggjufullir.
D.F.D.S.
Sameinaða munstrar nú í
fyrsta skipti konu, sem stýri-
mann á farþegaskip.
15% af heimsflotanum
liggja:
1752 skip, 100 millj. tonn dw„
liggja nú aðgerðalaus, eða yfir
15% af heimsflotanu' — sjö-
unda hvert skip.
Hin hvítu segl:
Hið nýja skólaskip Pólverja
Dar Mlodzizi, 2384 brúttó
tonn hefur loggað 16 sjómílna
gang hvað eftir annað á ferð
sinni frá Ermasundi til Kan-
aríeyja.
Breski flotinn:
Kaupskipafloti Breta hefur
minnkað um helming frá
1975. Skipafjöldinn er nú 868
skip, 24,7 millj. tonn dw.
Siglingatekjur Dana:
17.255 millj. dkr. sigldi danski
kaupskipaflotinn heim 1982.
Nettó uppgjör var 5.305 millj.
dkr„ þegar allt var greitt.
Kaupskipaflotinn er því þriðji
stærsti útflutningsatvin nuveg-
ur Dana, á eftir iðnaði og
landbúnaði.
Úr landi
Rísandi sólar:
Sanki, japanskt skipafélag,
fær 110 stór skip afhent frá
skipasmíðastöðvum á árunum
1984—1985. Verðmæti þeirra
er 1,4 milljarðar dollara.
Túrisminn, svíkur ekki
„Ola Normann“
Norðmenn eiga um 20 stór
skemmtiferðaskip, er sigla út
frá Florida um Karabiska
hafið. Vel eru þau setin því
nýting hefur verið um og yfir
95%.
Með kveðjum,
Sigurbjörn Guðmundsson.
v3-
Forríkur nirfill gaf fátæklingi, sem
hafði bjargað honum frá drukkn-
um, fáeina koparhlunka.
Áhorfendum blöskraði þetta,
og einn þeirra sagði: „Hann virð-
ist vita sjálfur, hvers virði hann
er.“
♦
Tvær símamellur sátu inni á bar
og ræddu yfir glasi um atburði
síðustu nætur. — Hvernig gekk
þér með þennan klikkaða miljón-
VÍKINGUR
era? spurði önnur. -— Hann var
svo sannarlega ískyggilegur, sagði
hin. — Hann vildi gera það í
LÍKKISTU. Hin sagði, ég er viss
um, að það hefur tekið á taugarn-
ar í þér. Vinkona milljónerans
svaraði: — Já, en ekki nærri eins
mikið og á líkmennina sex.
Á nóttunni sef ég vel og á inorgnana, en
það gengur illa að fá eins og fjögurra tíma
lúr í eftirmiðdaginu.